Fara í efni
Albir - svo þægilegt

Albir er skammt frá Benidorm, rólegur og fjölskylduvænn staður þar sem er auðvelt er að slaka á og njóta lífsins.
Albir er strandhlutinn af Altea.

Ströndin er steinvöluströnd, en er tilvalin til sólbaða. Einnig er hægt að ganga og hlaupa meðfram strandlengjunni á strandgötunni.

Altea er fallegur listamannabær sem teygir sig upp frá Albir. Þar er gaman að rölta um þröngar götur, skoða verk listamanna og kíkja í litlar verslanir. Þar er einnig að finna marga góða veitingastaði.