Fara í efni
Hótel á Albir

ALBIR PLAYA HOTEL & SPA ****

Hótelið er staðsett í Albir sem stutt frá Benidorm. Þetta er ágætt 4 stjörnu hótel sem er um 1 km frá ströndinni í Albir, sem er steinaströnd. Í næsta nágrenni eru verslanir, veitingastaðir og barir.

Herbergin eru snyrtileg og rúmgóð með svefnsófa sem nýtist sem sófi þegar hann er ekki í notkun. Herbergin eru vel búin með loftkælingu, WiFi, sjónvarpi og hárþurrku. Einnig er hægt að fá mini bar og öryggishólf gegn gjaldi. Við erum með herbergi með og án sundlaugarsýn. Herbergin taka mest 2 fullorðna og 2 börn.

Hótelgarðurinn er stór með sundlaug, sólbekkjum, sundlaugarbar og leikaðstöðu fyrir börn. Hægt er að leigja handklæði. Á hótelinu er einnig innilaug.

Á hótelinu eru tveir veitingastaðir. Annar þeirra er með hlaðborð og hinn er a la carte. Hægt er að velja um að vera með morgunmat, í hálfu fæði eða fullu fæði.

Á hótelinu er spa sem gestir hafa aðgang að gegn gjaldi.

Nánar um hótelið hér