Fara í efni
Alicante - Costa Blanca svæðið

Íslendingar þekkja Costa Blanca svæðið vel, enda hefur það uppá margt að bjóða. Þaðan er hægt að keyra til allra átta og tekur t.d. um 90 mínútur að keyra til Valencia. Vinsælustu áfangastaðir Íslendinga í nágrenni Alicante hafa verið Benidorm og Albir.

Alicante er höfuðborg Costa Blanca héraðs og þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Borgin býður uppá menningu, fallegar strendur og mikið mannlíf við smábátahöfnina. Í Alicante er fjöldi veitingastaða og mikil matar- og vínmenning. Fyrir þá sem eru í verslunarhugleiðingum má benda á t.d. verslunarmiðstöðvar eins og Gran Via, Plaza Mar 2 og El Corte Inglés. Ef þú vilt fara í golf, þá er fjöldi golfvalla á svæðinu.