Fara í efni
Algengar spurningar

Hvernig á ég að bóka í ferðina

Til að bóka í ferðina geta viðskiptavinir farið inn í bókunarvél okkar. 
Bókunarvélin okkar er takmörkuð og vonumst við til þess að fólk sýni því skilning, en unnið er að nýrri og endurbættri bókunarvél.

Einnig er hægt að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 4600600, senda tölvupóst á verdi@verditravel.is eða koma á söluskrifstofu okkar. Þjónustufulltrúar okkar hjálpa ykkur með glöðu geði.

Opið er á milli 08:00-16:00 alla virka daga.

Staðfestingargjald og fullgreiðsla

Staðfestingargjald í ferðina er 40.000 kr. per farþega.
Staðfestingargjald er óendurkræft.

Ferð skal vera fullgreidd eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför.

Akstur til og frá flugvelli

Verdi Ferðaskrifstofa er ekki með skipulagðar rútuferðir á hótelin. Þeir sem vilja fá fyrirfram bókaðan akstur skulu hafa samband við starfsmenn okkar.

Hópar og stórfjölskyldur geta fengið tilboð í akstur.

Fararstjórn

Enginn íslenskumælandi fararstjóri verður á okkar vegum í ferðunum. 

Sætisfrátekning og betri sæti

Engin betri sæti eru í boði í þessu flugi.

Hægt verður að taka frá sæti í flugið – leitið upplýsinga hjá starfsfólki okkar.

Covid málefni

Við hvetjum fólk til að kynna sér reglunar um ferðalög til og frá Íslandi. Hér má nálgast upplýsingar á Covid.is

Við hvetjum farþega til þess að kynna sér vel gildandi sóttvarnarreglur – bæði fyrir brottför og komu.

Afbókun, nafnabreytingar og annað

Afpöntun ferðar og endurgreiðsla fer eftir Ferðaskilmálum.

Ekkert er hægt að kaupa forfallatryggingu í ferðina.

Hvað ef?

Hollenska flugfélagið Transavia hefur flogið til og frá Akureyri allt frá árinu 2019 og gengið vel.
Mikil undirbúningsvinna hefur verið lögð í verkefnið af hálfu Transavia og Hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt-Travel. Transavia notast við Boeing 737 flugvélar sem henta vel fyrir Akureyrarflugvöll.

Ef ekki reynist hægt að lenda á Akureyri þá eru Egilsstaðaflugvöllur og Keflavíkurflugvöllur varaflugvellir.

Transavia er ábyrgt að koma farþegum á leiðarenda. Farþegum er ávallt útvegaður akstur og/eða gistingu ef þær aðstæður koma upp.
Ákvarðanir eru teknar af flugmönnum/flugstjórum Transavia og viðeignadi ferli svo unnið í samstarfi við Voigt-Travel & Ferðaskrifstofa Akureyrar. Lokaákvörðun er ávallt í höndum flugmanna og flugstjóra með öryggi farþega að leiðarljósi.

Starfsfólk Ferðskrifstofu Akureyrar svara öllum ykkar spurningum og aðstoðar farþega eftir fremsta megni