Fara í efni
Hótel í Amsterdam

Eden Hotel Amsterdam ***

Snyrtilegt, nýlega uppgert og gott 4**** hótel sem staðsett í hjarta Amsterdam. Hið fræga Rembrandt torgið er staðsett rétt handan við hornið.
Í kringum hótelið má finna marga af helstu gersemum Amsterdam en steinsnar frá hótelinu má finna fræg söfn á borði við Van Gogh safnið & Rijksmuseum, og hið fræga Rembrandt torgið er staðsett rétt handan við hornið.
Kalverstraat verslunargatan er í þægilegu göngufæri frá hótelinu sem og Dam Square torgið.

Nútímalegt og snyrtilegt hótel sem fengið hefur ágætis dóma hjá gestum.

Nánar um hótelið hér

Mövenpick Hotel Amsterdam ***

Vel staðsett og nútímalega innréttað 4**** hótel með flottu útsýni yfir miðsvæði Amsterdam. Hótelið sem er staðsett við bakka árinnar IJ, rétt hjá aðal járnbrautastöðinni og í göngufæri við mörg af helstu kennileitum Amsterdam.
Á hótelinu er góður veitingastaður og bar, ásamt heilsulind þar sem gestir geta slakað á og notið lífsins.

Nútímalegt og snyrtilegt hótel sem hentar vel fyrir hópa sem og einstaklinga.

Hægt er að lesa nánar um hótelið hér