Fara í efni
Hótel - Costa Ballena
Glæsilegt hótel með heilsulind, öll herbergi og veitingastaðir voru endurnýjaðir 2017.
Hótelið er í 3 mínútna göngufæri við golfskálann og býður upp á fullkomna slökun eftir afrek dagsins, einnig er falleg strönd í 500 metra fjarlægð frá hótelinu. Öll herbergi eru með sjávarsýn og útsýni yfir golfvöllinn.
 
Herbergin eru með góðum baðherbergjum með hárþurrku, loftkælingu, síma, internettengingu (Wi-Fi), gervihnattasjónvarpi, minibar, öryggishólfi og svölum. Góð heilsulind er á hótelinu ásamt margvíslegri þjónustu. Tvær sundlaugar eru í garðinum.
 
Í næsta nágrenni við hótelið er stórmarkaður þar sem verð á vatni og vistum er mjög gott. Flestir af okkar farþegum nýta sér skutluþjónustu okkar en við bjóðum upp á reglulegar ferðir í matvörubúðina.
Einnig er í 10 mínútna akstursfjarlægð nýleg verslunarmiðstöð og margir hafa nýtt sér skutluþjónustu þangað og gert góð kaup. Þar er að finna margar fínar búðir eins og t.d. H&M, Zara, íþróttavöruverslanir, verslanir með leður og gull svo eitthvað sé nefnt.

Fleiri myndir af hótelinu hér

Helstu upplýsingar varðandi sóttvarnir á hótelinu

Nánar um hótelið hér