Fara í efni
Hagnýtar upplýsingar Gdansk

FLUG:
Flugtíminn er um 3,5 klst.

FARANGUR:
Nice air: Leyfilegt er að taka með sér 1 tösku sem vegur að hámarki 20 kg.
Einnig mega farþegar hafa með sér litla handfarangurstösku að hámarki 10 kg.

AKSTUR:
Akstur til og frá flugvelli er innifalið í pakkanum. 
Frá flugvellinum til gististaða er um 30-40 mínútna akstur.

GJALDMIÐILL:
Í Póllandi er notast við Zloty gjaldmiðilinn (Pólsk Zlot). 
Eitt Zlot kostar um 31-33 kr.

TRYGGINGAR:
Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.