Fara í efni
Hótel í Gdansk
Holiday Inn Gdansk City Centrum ****

Nýlegt og frábært 4* hótel sem er staðsett í hjarta Gdansk, á Spichrzów-eyjunni og um 450m frá Dlugi Targ (gamla bænum).
Öll herbergin eru reyklaus og eru búin loftkælingu og sérbaðherbergi.

Á neðstu hæð hótelsins má finna ágætis veitingastað, ásamt flottu bar svæði.
Á hótelinu er skemmtilegur Sky Bar, á 7 hæð, með víðáttumiklu borgarútsýni.

Nútímalegt og snyrtilegt hótel sem fengið hefur góða dóma hjá gestum.

Nánar um hótelið hér

Puro Gdansk Stare Miasto ****

Vel staðsett og nútímalega innréttað 4* hótel í miðbæ Gdansk. Á hótelinu er góður veitingastaður og flottur bar þar sem gestir geta slakað á og notið lífsins. 
Einnig er flottur Sky Bar á hótelinu sem skemmtilegt er að setjast niður í góðra vina hóp.

Nútímalegt og snyrtilegt hótel sem hentar vel fyrir hópa sem og einstaklinga.

Hægt er að lesa nánar um hótelið hér

Hotel Grano Gdansk ****

Nýlegt, snyrtilegt og flott 4* hótel staðsett steinsnar frá gamla bænum í Gdansk. Fallega innréttað hótel sem er sérstaklega gott fyrir hópa.

Hotel Grano Old Town býður upp á ágætis heilsuaðstöðu, þar á meðal innisundlaug, gufubað og heitan pott.
Veitingastaður hótelsins er góður og barsvæði hótelsins skemmtilegt.

Nánar um hótelið hér


Radisson Hotels and Suits Gdansk ****

Frábærlega staðsett, stórt og glæsilegt 4* hótel í hjarta Gdansk. 

Hótelið býður gestum upp á herbergi með loftkælingu, fataskáp, katli, öryggishólfi, flatskjá og sérbaðherbergi með sturtu. Sum herbergin eru með eldhús með ísskáp.

Hægt er að lesa nánar um hótelið hér