Hvernig á ég að bóka í ferðina
Til að bóka í ferðina geta viðskiptavinir farið inn í bókunarvél okkar.
Bókunarvélin okkar er takmörkuð og vonumst við til þess að fólk sýni því skilning, en unnið er að nýrri og endurbættri bókunarvél.
Einnig er hægt að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 4600600, senda tölvupóst á verdi@verditravel.is eða koma á söluskrifstofu okkar. Þjónustufulltrúar okkar hjálpa ykkur með glöðu geði.
Opið er á milli 09:00-16:00 alla virka daga.
Staðfestingargjald og fullgreiðsla
Staðfestingargjald í ferðina er 40.000 kr. per farþega.
Staðfestingargjald er óendurkræft.
Ferð skal vera fullgreidd eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför.
Akstur til og frá flugvelli
Innifalið í pakkatilboði okkar er akstur til og frá flugvelli.
Fararstjórn
Fararstjóri / starfsmaður á vegum VERDI Travel verður á svæðinu.
Sætisfrátekning og betri sæti
Engin betri sæti eru í boði í þessu flugi.
Hægt verður að taka frá sæti í flugið – leitið upplýsinga hjá starfsfólki okkar.
Covid málefni
Við hvetjum fólk til að kynna sér reglunar um ferðalög til og frá Íslandi. Hér má nálgast upplýsingar á Covid.is
Við hvetjum farþega til þess að kynna sér vel gildandi sóttvarnarreglur – bæði fyrir brottför og komu.
Afbókun, nafnabreytingar og annað
Afpöntun ferðar og endurgreiðsla fer eftir Ferðaskilmálum. Hægt er að skoða Ferðaskilmála VERDI hér.
Ekkert er hægt að kaupa forfallatryggingu í ferðina.
Gjafabréf Nice air
Því miður er ekki hægt að nota gjafabréf Nice air í þessa ferð þar sem um leiguflug er að ræða á vegum VERDI Travel
Stök flugsæti
Í flestum tilfellum er hægt að kaupa stök flugsæti hjá okkur.
Hafið samband við sölufulltrúa okkar í síma 4600600 eða verdi@verditravel.is