HM ÍSLENSKA HESTSINS 6. - 14.ÁGÚST Í OIRSCHOT (EINDHOVEN)
Sumarið 2023 verður "Heimsmeistaramót íslenska hestsins " haldið í Eindhoven í Hollandi.
Flogið verður til Amsterdam og Brussel og ekið þaðan til Eindhoven þar sem farþegar VERDI gista á góðum hótelum.
Eindhoven er mjög skemmtileg 220.000 manna borg í um 130 km akstursfjarlægð bæði frá Amesterdam og Brussel. Mikið úrval verslana og góðra veitingastaða er miðbænum.
Mótið sjálft fer fram í Oirschot, litlum skemmtilegum bæ í útjaðri Eindhoven. Daglegar ferðir milli hótels og mótssvæðis og tekur aksturinn um 15 mín.
Tvisvar áður hefur Heimsmeistaramót verið haldið í Oirschot við mikla ánægju þeirra sem þau mót sóttu, bæði keppenda og áhorfenda enda öll framkvæmd glæsileg.
Framkvæmdaraðilar eru þeir sömu og þeir vita hvað til þarf til að mótið verði eins glæsilegt og hægt er.
Móttaka ; "Spekingar spjalla" verður fyrir farþega VERDI þar sem léttar veitingar verða í boði og spáð verður í spilin varðandi framvindu mótsins.
Gisting og samgöngur
Gist í miðborg Eindhoven á mjög góðum hótelum ; Inntel Art, Holiday Inn og Crown.
Öll eru þetta mjög góð hótel og eru vel staðsett gagnvart bænum og mótinu.
Góður morgunmatur og þráðlaust net á öllum herbergjum.
Ferðir fyrir farþega VERDI eru milli hótels og mótsvæðis (ca 15 km). Aksturinn tekur um 15 mín.
Miðar á mótið
Miðarnir á mótið eru svo staðsettir á besta stað í „Íslendingastúkunni“.
Spekingar spjalla
Fyrir utan hefðbundna dagskrá mótsins verður sérstök dagskrá fyrir farþega VERDI Sport. Vel valdir spekingar mæta á hótelið og spá í framvindu mótsins með farþegum okkar. Það hefur ávallt verið áhugaverð samkoma.
Sú uppákoma er einungis fyrir farþega VERDI Sport, sem býður upp á léttar veitingar á meðan spjallað er.
Frekari upplýsingar.
Frekari upplýsingar veitum við í gegnum netfangið sport@verditravel.is eða í gegnum síma 460-0600
Innifalið í verði:
- Flug og flugvallaskattar
- Töskuheimild 23 kg
- Akstur til / frá flugvelli á/frá hóteli erlendis
- Gisting í með morgunmat.
- Viku eða helgarpassi á mótið - eftir því sem við á.
- “Spekingar spjalla” Móttaka og léttar veitingar.
(Ath - á aðeins við vikuferðirnar) - Ferðir milli hotels og mótsvæðis.
- Íslensk fararstjórn