Fara í efni
Almennar upplýsingar

Ferðinar okkar eru annað hvort út með Icelandair til Manchester eða út með Play til Liverpool. Flogið út með morgunflugi á föstudögum og heim í hádeginu á mánudögum nema annað sé tekið fram.
Gist er á Delta Hotels by Marriott Liverpool City Centre, gott 4 stjörnu hóteli í miðborg Liverpool.

Frekari upplýsingar veitum við í gegnum netfangið sport@verditravel.is eða í gegnum síma 460-0600.

Hvað er innifalið?

Innifalið í ferðunum*; Flug til og frá Manchester með Icelandair eða með PLAY til Liverpool, skattar, gisting með morgunverði á Delta Hotels by Marriott Liverpool City Centre og miði á leikinn (Premier Club miðar eða Reds bar miðar).

Þegar flogið er með Play er innifalin innrituð taska og lítill bakpoki í handfarangur.
Þegar flogið er með Icelandair er innifalin innrituð taska og handfarangurstaska.

Ekki er hægt að greiða fyrir ferðirnar með vildarpunktum Icelandair, en farþegar í vildarklúbbnum fá vildarpunkta fyrir Icelandairflugið í ferðunum.