Fara í efni
Hótel - Montecastillo Golf
Glæsilegt og virðulegt hótel sem hefur fengið mikla andlitslyftingu. Veitingaaðstaðan var öll tekin í gegn síðastliðið vor.
Hótelið stendur rétt utan við hinn fallega bæ Jerez de la Frontera.
Hér er umgjörðin einstaklega glæsileg og allur aðbúnaður og þjónusta fyrir hótelgesti eins og best verður á kosið. Við hótelið eru 2 sundlaugar, 2 veitingastaðir, barir, glæsileg heilsulind (spa), líkamsrækt o.fl.
 
Á hótelinu eru 208 rúmgóð og vel búin herbergi, m.a. með loftkælingu, minibar, öryggishólfi, gervihnattasjónvarpi, síma og baðherbergi með hárþurrku.
Auk hins glæsilega golfvallar eru við hótelið fótboltavellir, tennisvellir og almenn aðstaða til íþróttaiðkunar
 

Fleiri myndir af hótelinu hér

Helstu upplýsingar varðandi sóttvarnir á hótelinu

Nánar um hótelið hér