Fara í efni
Golfskólinn

VERDI GolfSaga býður farþegum sínum upp á golfskóla á Novo Sancti Petri - aðstæður til golfkennslu- og æfinga á heimsmælikvarða


Golfskólinn á Novo Sancti Petri stendur yfir í 6 daga og samanstendur af fyrirlestrum, verklegri golfkennslu, golftengdum æfingum og golfleik.

Það sem kennt er í golfskólanum er:

  • Stutta spilið; fleyghöggin, höggin í kringum flatirnar og púttin
  • Langa spilið; teighöggin, löngu brautarhöggin og millihöggin
  • Leikskipulag og hugarfar

Eftir lok hvers skóladags geta nemendur æft og spilað golf að vild, með ótakmörkuðum æfingaboltum, aðgangi að æfingasvæði og Par 3 holu golfvelli. Þeir sem hafa reynslu og sjálfstraust geta einnig spilað á öllum þeim 36 holum sem Novo Sancti Petri býður uppá.

Golfskólinn er hugsaður sem framhaldsskóli fyrir þá nemendur sem hafa lokið við skólann á Costa Ballena eða eru með undir 24 í forgjöf. 

Kennarateymi skólans er skipað golfkennurunum Magnúsi Birgissyni (PGA-SPGA) og Ragnhildi Sigurðardóttir (PGA) ásamt fjölda reyndra gestakennara. Fjöldi gestakennara skólans miðast við fjölda nemenda hverju sinni.

Gæði, reynsla og frábærar aðstæður gera það að verkum að þú verður ekki svikin(n) af því að setjast á skólabekk syðst í Andalúsíu og nema golfíþróttina í heila viku.