Fara í efni
Tenerife frá Akureyri
Draumafríið á Tenerife

Hér eru allar forsendur til staðar fyrir hinu fullkomna fríi, sól og veðursæld allt árið um kring, hlýr sjór og gylltur sandur, frábært úrval fjölbreyttra veitingastaða og aragrúi ólíkra verslana.
Sól, sjór og sandur er auðvitað í stóru hlutverki á Tenerife en mundu jafnframt að Tenerife hefur upp á svo margt annað að bjóða líka.

Ameríska ströndin, eða Playa de las Américas, er höfuðborg skemmtanalífsins á Tenerife en á þessum líflega áfangastað á suðurströnd eyjarinnar er einfaldlega mesta fjörið. Þúsundir ferðamanna koma þangað, skemmta sér og njóta lífsins í sólinni og þeir sem vilja geta fundið skemmtun allan sólarhringinn. Það er því ekki skrítið að þetta sé einn af vinsælustu áfangastöðunum í Evrópu.

Costa Adeje er á suðurströnd Tenerife og státar af aðlaðandi og fallegum sandstrendum. Þar eru einnig skemmtanir í hæsta gæðaflokki, lúxushótel, -íbúðir og -smáhýsi og veitingastaðir fyrir vandfýsna. Á þessum frábæra áfangastað er hægt að lofa afslöppun, skemmtun, ævintýrum og auðvitað sólskini!

Los Cristianos er staðsett fyrir vestan flugvöllinn (Reina Sofía) og er einn af vinsælustu og fjölmennustu áfangastöðum Kanaríeyja. Strendurnar eru fallegar og höfnin sömuleiðis en þaðan er hægt að fara í bátsferðir til að veiða, njóta lífsins, skoða hafsbotninn á bátum með glerbotn, siglingar á staði sem eru góðir til köfunar eða taka ferjur til nágrannaeyjunnar, La Gomera.