Fara í efni
Árshátíð Stefnu 2026 - Gdansk
Ferðalýsing - helstu upplýsingar

GDANSK:

Gdansk er sögufræg hafnarborg staðsett í norðurhluta Póllands. Borgin varð fyrir miklum áhrifum af seinni heimsstyrjöldinni og hin magnþrunga saga liggur í loftinu. Í borginni er ört vaxandi ferðaþjónusta og frá henni eru mjög góðar samgöngur í allar áttir.
Í Gdansk finnur þú fullt af skemmtilegum mörkuðum, listasýningu, góðum veitingahúsum ásamt iðandi mannlífi.

Að öllu jöfnu er auðvelt og gott að versla í Póllandi. Verðlag og úrval er gott og aðgengi að fínum verslunum þægilegt.

Það ættu allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi í Gdansk.

Gdansk, Sopot og Gdynia – Þríborgin!

Sopot

Sopot er fallegur strandbær sem verður sívinsælli áfangastaður meðal ferðamanna. Bærinn er staðsettur milli Gdynia og Gdansk. Sopot er þekktur fyrir úrval af góðum hótelum, fínum veitingastöðum ásamt af ýmiskonar heilsulindum og úrvals meðferðum.

Eina lengstu trébryggju Evrópu má finna í Sopot, en hún er um 515 metrar að lengd.

Gdynia

Í gegnum árin hefur Gdynia þróast úr litlum sjávarbæ í mikilvæga hafnarborg, með heimsborgar yfirbragði og nútímalegum arkitektúr. Þessi þróun stöðvaðist þó í seinni heimstyröldinni, þegar hafnarsvæði og skipasmíðastöð urðu fyrir sprengingu og eyðulögðust. Í stríðslok hófst endurbygging á ný. Í dag er Gdynia vinsæll áfangastaður skemmtiferðaskipa og lúxussnekkja.

FLUGUPPLÝSINGAR:
Hópurinn er tvískiptur í flugi og því flogið frá Akureyri og frá Keflavík.

Frá Akureyri er flogið með leiguflugi. Flugrekandi er Atlantic Airways, Færeyska flugfélagið sem unnið hefur með okkur í fjölmörgum verkefnum.
Heimflug til Akureyrar er flogið með LOT, Pólska flugfélaginu sem við höfum einnig góða reynslu af frá fyrri verkefnum. 

Frá Keflavík er flogið með áætlunarflugi Wizz air til Gdansk báðar leiðir. 

Flogið er til Gdansk Lech Walesa flugvallarins og er áætlaður flugtími er um 3klst & 20mín.

Hverjum farþega er heimilt að taka með sér eina innritaða tösku (hámark 20 kg) og eina litla handfarangurstösku/bakpoka (5 kg).
Vinsamlegast athugið að ekki er gert ráð fyrir hefðbundinni flugfreyjutösku sem handfarangri.

Innritun fyrir flug hefst um 2 klst fyrir brottför (á Akureyri og í Gdansk). Ekki er hægt að innrita sig rafrænt í leiguflugið, en þeir farþegar sem fara með Wizzair geta innritað sig á netinu 24klst fyrir brottför. Farþegar með Wizz munu fá frekari upplýsingar sendar til sín í tölvupósti nokkrum dögum fyrir brottför.

Gott er að hafa ferðagögn (voucher) við hendina sem VERDI Ferðaskrifstofa sendir á farþega.
Engir flugmiðar eru gefnir út fyrir leiguflugið en er nóg að framvísa gildu vegabréfi við innritun.

Ekki er hægt að kaupa eða taka frá sæti í fluginu. Fólki með séróskir er bent á að hafa samband við Verdi Travel á netfangið verdi@verditravel.is 

Áætlaðir flugtímar:
AEY - GDN (13. maí 2026)
18:35 - 00:05 (+1)
KEF - GDN (13. maí 2026)
19:55 - 01:30 (+1)

GDN - AEY (17. maí 2026)
13:15 - 14:45
GDN - KEF (17. maí 2026)
17:00 - 18:55

VÖRUR OG VEITINGAR Í FLUGI:
Hægt er að kaupa vörur og léttar veitingar um borð (drykkir, smáréttir/samlokur, snarl) . Greiða þarf fyrir vörur og veitingar með greiðslukortum og muna þarf pin númer á kortum. Ekki er hægt að treysta á snertilausar greiðslur í háloftunum.

VIÐ KOMUNA TIL GDANSK:
Við komuna til Gdansk munu rútur bíða fyrir utan flugstöðina ásamt starfsfólki VERDI Travel. Rúturnar verða merktar og mun starfsfólk aðstoða farþega á staðnum.
Akstur frá flugvelli og að hóteli tekur um 30 mínútur. 

Við komuna á hótelið tekur við innritun sem reikna má með að taki smá tíma.
VERDI Ferðaskrifstofa verður búin að undirbúa innritun eftir bestu getu í samstarfi við starfsmenn hótelsins.
Gera má ráð fyrir að sýna þurfi vegabréf hjá gestum við innritun.

Þar sem farþegar eru að koma upp á hótel seint að kvöldi/nóttu þá bendum við á að ekki má gera ráð fyrir að matsölustaðir séu opnir.

TRYGGINGAR OG FERÐAGÖGN:
Við bendum farþegum á að skoða sín tryggingamál áður en lagt er af stað. Flest tryggingafélög á Íslandi eru með valfrjálsar ferðatryggingar og því ekki víst að ferðatryggingar séu innifaldar í heimilistryggingum.
Ágætar ferðatryggingar eru einnig á kreditkortum en mismunandi er eftir gerðum korta hversu háar tryggingar eru innifaldar á þeim. Ekki þarf að greiða fyrir ferðina með kreditkorti til að virkja þær tryggingar eins og var hér áður fyrr.
Evrópska sjúkratryggingakortið er einnig ágætt að hafa en sækja má um það á www.sjukra.is. Það kort tryggir fólki aðgang að ríkisrekinni heilbrigðisþjónustu ef fólk veikist eða slasast.

Einnig bendum við farþegum á að athuga gildistíma vegabréfs og gera ráðstafanir í tíma.

CHECK-OUT AF HÓTELUM OG HEIMFERÐ:
Útritun (check-out) af hótelum er að öllu jafna eigi síður en klukkan 11:00.
Á heimferðardegi fara rútur frá hótelum og verða tímasetningar á þeim auglýstar síðar.