Fara í efni
Árshátíð Stefnu 2026 - Gdansk
Sveitarstjórnarkosningar 2026 - Muna að kjósa!

Eins og margir vita munu sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026. Þar sem við verðum í árshátíðarferðinni okkar á kjördag, hvetjum við alla ferðalanga sem búsettir eru á Íslandi til að nýta kosningaréttinn og kjósa utan kjörfundar áður en lagt er af stað.

Hægt er að greiða atkvæði hjá sýslumönnum á 28 stöðum á landinu. Munið að taka með gild persónuskilríki (ökuskírteini eða vegabréf) þegar þið mætið á kjörstað.

Hér eru upplýsingar um helstu kjörstaði fyrir okkar fólk á Íslandi:

Höfuðborgarsvæðið:

  • Hlíðarsmári, Kópavogi: Aðalkjörstaðurinn er hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðarsmára. Fyrstu tvær vikurnar er opið frá kl. 10:00 - 18:00 (athugið að lokað er sumardaginn fyrsta).

  • Gott er að hafa í huga að sýslumaður hefur oft sett upp aukakjörstaði á fjölförnum stöðum, líkt og í Holtagörðum, þegar nær dregur kosningum.

Norðurland eystra:

  • Akureyri: Strandgata 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorg). Opið virka daga kl. 10:00 - 15:00.

  • Húsavík: Útgarður 1. Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00 - 15:00 og föstudaga kl. 09:00 - 14:00. (Ath: Lokað föstudaginn 24. apríl).

Kosning erlendis (fyrir starfsfólk búsett erlendis): Fyrir þá starfsmenn okkar sem eru búsettir erlendis er auðvitað hægt að greiða atkvæði í íslenskum sendiráðum og hjá ræðismönnum. Kjósendur þurfa sjálfir að leita upplýsinga á vefsvæðum viðkomandi sendiráða eða hafa samband við ræðismann í sínu landi til að kynna sér hvar og hvenær er hægt að mæta. Sýna þarf gild skilríki, til dæmis ökuskírteini eða vegabréf, þegar kosið er.