Góð sólgleraugu og skíðagleraugu eru nauðsynleg.
Að sjálfsögðu er mælt með því að allir noti hjálm.
Skíðagríma er góð ef kalt er í veðri.
Aldrei stöðva undir blindhæð í brekku.
Sá sem er fyrir neðan í brekku á réttinn.
Drekka má vatnið úr krananum.
Muna að hafa sólarvörn með.
Ávallt að skíða með aðgát!
TRYGGINGAR:
Það getur skipt miklu máli að vera rétt tryggður. Flestir eru tryggðir í gegnum kreditkortið sitt eða fjölskyldutryggingu. Við mælum með því að heyra í tryggingafélaginu ykkar til að hafa allt á hreinu áður en ferðin hefst. Það fylgir SOS kort með kreditkortum sem eru með þau símanúmer sem nauðsynlegt er að hafa við höndina ef eitthvað kemur upp á.
Neyðarþjónusta SOS International er með sólahringsvakt ef um alvarleg veikindi eða slys um ræðir - sími 0045 70 10 50 50.
Eins mælum við með að vera með Evrópska sjúkratryggingakortið í för, nánari upplýsingar er að finna HÉR!