Fara í efni
Costa Ballena - Haustið 24
Golfskóli 101 & 201

GolfSaga býður farþegum sínum upp á golfskóla 101 og 201 á Costa Ballena - aðstæður til golfkennslu- og æfinga á heimsmælikvarða


Golfskólar 101 og 201 á Costa Ballena standa yfir í 6 daga og samanstanda af fyrirlestrum, verklegri golfkennslu, golftengdum æfingum og golfleik.

Golfskóli 101

Golfskóli 101 er fyrir byrjendur í golfi. Það sem kennt er í golfskóla 101 er:

  • Golfleikurinn; frá púttum til upphafshögga
  • Að leika golf undir handleiðslu kennara
  • Hugarfar og leikskipulag
  • Helstu golfsiðir og golfreglur

40.000kr á mann

Eftir lok hvers skóladags geta nemendur æft og spilað golf að vild, með ótakmörkuðum æfingaboltum, aðgangi að æfingasvæði og öllum þeim 36 golfbrautum sem Costa Ballena býður uppá.

Golfskóli 201

Golfskóli 201 er fyrir þá sem hafa farið í gegnum Golfskóla 101 á Costa Ballena og vilja halda áfram að þróast sem kylfingar og auka færni sína í golfi.
Það sem kennt er í Golfskóla 201 er:

  • Áfram gakk í golfinu!
  • Stutta spilið; fleyghöggin, höggin í kringum flatirnar og púttin
  • Langa spilið; teighöggin, löngu brautarhöggin og millihöggin
  • Hugarfar og leikskipulag
  • Golfsiðir og golfreglur
  • Markmið og leiðir; hvernig á að nýta það sem maður hefur og styrkja það til að leika á sem fæstum höggum

40.000kr á mann

Eftir lok hvers skóladags geta nemendur æft og spilað golf að vild, með ótakmörkuðum æfingaboltum, aðgangi að æfingasvæði og öllum þeim 36 golfbrautum sem Costa Ballena býður uppá.

 

Golfskólarnir hafa verið vinsælir og leiðandi í golfkennslu íslendinga erlendis frá árinu 1997 og verið staðsettir á Costa Ballena frá árinu 2006.
Yfir 7000 kylfingar á öllum aldri hafa útskrifast úr golfskólunum og hafa tileinkað sér að leika golf sér til ánægju hvar og hvenær sem er.
Ábyrgð á kennslu golfskólanna hafa Magnús Birgisson (PGA-SPGA) og Ragnhildur Sigurðardóttir (PGA). Við skólana starfa golfkennarar og golfkennaranemar ásamt afreksfólki í golfi. Fjöldi kennara miðast við fjölda nemenda hverju sinni.

Gæði, reynsla og frábærar aðstæður gera það að verkum að þú verður ekki svikin(n) af því að setjast á skólabekk syðst í Andalúsíu og nema golfíþróttina í heila viku.