Handavinnuferð á Yarndale
Handavinnuferð á Yarndale – England
Komdu með VERDI Travel og Garn í gangi í einstaka handavinnuferð til Englands dagana 22. - 27. september 2027
Við bjóðum upp á spennandi ferð á Yarndale, eina skemmtilegustu garn- og handverkshátíð Englands, þar sem saman koma áhugafólk um prjónaskap, ull og fjölbreytt handverk. Á hátíðinni verða hátt í 200 sýningarbásar, spennandi námskeið og ótal hugmyndir fyrir handavinnufólk.
Ferðin hefst í Manchester þar sem við njótum borgarinnar og kynnum okkur spennandi handverks- og listalíf. Þaðan liggur leiðin til Harrogate og á Yarndale-hátíðina í Skipton, þar sem við eigum tvo frábæra daga innan um garn, sköpun og innblástur.
Fararstjórar eru þær Íris og Sveina frá Garni í gangi, sem leiða hópinn í þessari skemmtilegu ferð.
Tilvalin ferð fyrir vinkonuhópinn og alla sem elska garn, handavinnu og góðan félagsskap
Verð frá: 235.500 kr. á mann í tvíbýli
Aukagjald fyrir einbýli: 64.750 kr.
Innifalið í pakkaferð:
- Flug með Icelandair ásamt töskum og sköttum
- Akstur erlendis skv. ferðaáætlun
- Gisting í Manchester í 2 nætur með morgunverði
- Gisting í Harrogate í 3 nætur með morgunverði
- Aðgöngumiði á Yarndale hátíðina 25. & 26. sept
- Einn sameiginlegur kvöldverður
- Traust íslensk fararstjórn
Upplýsingar um flug:
22. september 2027
- KEF - MAN (FI440)
- 08:00 - 11:40
- Flogið með Icelandair
27. september 2027
- MAN - KEF (FI441)
- 13:00 - 14:50
- Flogið með Icelandair
Hér má nálgast nánari ferðalýsingu um ferðina ásamt upplýsingar um fararstjóra
Hér má nálgast upplýsingar um verðið og hvað er innifalið í pakkaferðinni.
Hér má nálgast helstu upplýsingar um hótelin sem í boði eru í þessari ferð.
Frá og með 2. apríl 2025 þurfa Íslendingar á leið til Bretlands að hafa sótt um rafrænt ferðaleyfi (ETA, Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ferðast.
Hér má nálgast upplýsingar.
Ferðaskilmálar
Ferðaskilmálar VERDI Travel