FARARSTJÓRN & ÞJÁLFARAR
Gyða Eiríksdóttir:
Gyða er FIA einkaþjálfari og LES MILLS kennari. Hún hef starfað sem þjálfari í yfir 20 ár Hún vinnur á líkamsræktarstöðinni HRESS og kennir þar vinsæla hópatíma samhliða einkaþjálfun.
Gyða hefur margra ára reynslu í líkamsræktar- og heilsugeiranum og hef einnig tekið þátt í ýmsum fittnessmótum.

Helena:
Helena Björk Jónasdóttir, íþróttafræðingurm M.Ed íþrótta- og heilsufræði, yogakennari og margra ára reynsla af þjálfun. Helena er afar vinsæll þjálfari og koma færri að en vilja í tímana hennar.
Þjálfari í Hress
Þjálfari á Endurhæfingastöð hjarta- og lungnasjúklinga
Kennari á Hrafnistu í Hafnarfirði

FERÐALÝSING
Flogið með Icelandair til Gdansk í Póllandi, stutt rútuferð til Sopot. Við dveljum á glæsilegu Sheraton Sopot Hotel, sem er einstaklega vel staðsett við ströndina og býður upp á fallegt umhverfi til hvíldar og slökunar.
Í ferðinni verður lögð áhersla á hreyfingu, vellíðan og góðan félagsskap. Boðið verður upp á fjölbreyttar æfingar sem henta ólíkum þörfum og getu, meðal annars styrktaræfingar af ýmsu tagi, þolæfingar, jóga, pilates, teygjur og slökun með fræðslumolum.
Við förum einnig í hjólaferð og gönguferð og gefst þannig gott tækifæri til að njóta fallegs umhverfis Sopot og hreyfa okkur úti við.
Auk æfinganna gefst góður tími til að slaka á, njóta hótelsins, strandarinnar og þess sem Sopot hefur upp á að bjóða.
Það eru innifaldir tveir kvöldverðir sem við ætlum að njóta saman. Annars vegar verður boðið upp á kvöldverð á hótelinu og hins vegar förum við allar saman á veitingastað í Sopot og eigum þar notalega kvöldstund í góðum félagsskap.
Markmiðið er að eiga saman skemmtilega og endurnærandi heilsuferð þar sem hreyfing, vellíðan, slökun og samvera eru í fyrirrúmi
SOPOT
Sopot er skemmtilegur áfangastaður sem er partur af þríborginni (e. Tri-city) Gdynia og Gdansk. Sopot er strandbær sem hefur skapað sér gott orðspor meðal fólks í ráðstefnu- og hópaferða bransanum.
Göngugatan í hjarta Sopot er skemmtilegt svæði en þar má finna m.a. verslanir, góða veitingastaði, kaffihús og skemmtilega bari.
Við endann á göngugötunni er svo vinsæl göngubryggja út á sjó og svæðið þar í kring er einkar skemmtilegt.
Það má því með sanni segja að miðbær Sopot haldi vel utan um hópa.
Auðvelt og þægilegt er að komast í miðbæ Gdansk þar sem finna má iðandi mannlíf ásamt sögufrægum söfnum sem skemmtilegt er að heimsækja.
Auðvelt er að komast í góðar verslunarmiðstöðvar og gera góð kaup, fyrir þá sem hafa áhuga á slíku.
Almennt séð er verðlag gott á Gdansk svæðinu, þjónustustig hátt á og gæðin góð.
Allir þessir þættir spila stórt hlutverk er valinn er áfangastaður fyrir ferð sem þessa.