Fara í efni
HM í handbolta - Þýskaland 2027
Algengar spurningar

Hvernig á ég að bóka í ferðina

Til að bóka í ferðina geta viðskiptavinir farið inn í bókunarvél okkar.
Bókunarvélin okkar er einföld og notendavæn. Viðskiptavinir er beðnir um að fylla inn allar umbeðnar upplýsingar, m.a. vegabréfsupplýsingar. 

Ef viðskiptavinir þurfa á aðstoð að halda eða eru með séróskir varðandi sína bókun hægt að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 4600600, senda tölvupóst á verdi@verditravel.is eða koma á söluskrifstofu okkar.
Þjónustufulltrúar okkar hjálpa ykkur með glöðu geði.

Opið er á milli 09:00-16:00 alla virka daga.

Staðfestingargjald og fullgreiðsla

Staðfestingargjald í ferðina er 50.000 kr. per farþega.
Staðfestingargjald er óendurkræft.

Ferð skal vera fullgreidd eigi síðar en 7 vikum fyrir brottför.

Sætisfrátekningar og upplýsingar um flug

Við gerð bókunar getur fólk fest sér flugsæti í flugum. Það er gert í bókunarferlinu.

Economy standard sæti eru í allri vélinni og því ekki hægt að kaupa betri sæti né tryggja meira fótapláss.

Sætisfrátekning kostar 2.500kr per fluglegg.

Um borð í fluginu verður hægt að kaupa drykki og snarl (standard buy-on-board catering).

Miðar á leikina

Í báðum pakkaferðum okkar eru miðar á leikina (dagspassar) innifaldir í pakkaverði.

19 - 22 janúar:
Miðarnir á leik þrjú í riðlakeppninni eru í hólfum G og H (Magdeburg)
Miðarnir á leik eitt í milliriðli eru í hólfum U4 og U5 (Hannover)

22 - 26. janúar:
Miðar á leiki tvö og þrjú í milliriðlinum eru í hólfi U5 (Hannover).

Miðarnir eru afhentir fyrir brottför.

Hvar eru leikir Íslands spilaðir?

Ísland mun spila leika í H-riðli sem fer fram í Magdeburg. Þar er leikið í GETEC-Arena sem er um 6500 manna höll.

Milliriðillinn verður spilaður í Hannover. Þar er leikið í ZAG Arena sem tekur um 10.000 manns.

Akstur erlendis

Innifalið í pakkanum er skipulagður akstur til og frá flugvelli erlendis, ásamt akstri á leikinn í Magdeburg í fyrri ferðinni.
Sjá nánari upplýsingar í ferðalýsingu.

Tímasetningar á akstri á brottfarardegi verða auglýstar þegar nær dregur.

Fararstjórn

Traust íslensk fararstjórn verður á vegum VERDI Travel.
Nánar auglýst síðar.

Fæði á hótelinu

Í þessari ferð er morgunverður innifalinn á hótelinu.

Athugið að ekki er hægt að bóka þriggja manna herbergi.

Framlengja eða breytingar á ferð

Þar sem um er að ræða pakkaferðir í leiguflugi er ekki hægt að sleppa heimflugi til að framlengja eða kaupa flug aðra leiðina.

Leitið upplýsinga hjá sölufulltrúum VERDI Travel

Athugið að ekki er hægt að bóka þriggja manna herbergi.

Upphitanir og stemning fyrir leiki

Eins og venjulega á stórmótum verður mikil stemning.
Upphitanir fyrir stuðningsmenn verða auglýstar fyrir leikina og hvetjum við stuðningsmenn til að mæta og hita hressilega upp.

Við hvetjum farþega til að fylgjast með.

Afbókun, nafnabreytingar og annað

Afpöntun ferðar og endurgreiðsla fer eftir ferðaskilmálum.

Ekki er hægt að kaupa forfallatryggingu í ferðina hjá okkur.