Fara í efni
HM íslenska hestsins 2027
Hótel í ferðinni

HÓTEL MARIANDL AMBERG

Mjög gott nýendurnýjað, nýtískulegt hótel í miðbæ Amberg. Staðsetningin er frábær í hjarta miðbæjarins þar sem allt er við hendina. Góð herbergi og baðherbergi, sjónvarp og WiFi. Á hótelinu er "Patio" með veitingaþjónustu, bar, "Rooftop" bar og nýtt ítalskt veitingahús. Morgunverður innifalinn. Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn.

Hægt er að sjá meira um hótelið.

Hótel Mariandl Amberg

HOTEL VIENNA HOUSE

Gott hótel í jaðri miðbæjar Amberg. Fín staðsetning – um það bil 8 mínútna rölt á aðaltorgið Marktplatz í miðjum miðbænum. Góð, stór og rúmgóð herbergi, góð baðherbergi, WiFi og sjónvarp. Morgunverður innifalinn. Inni- og útibar. Við hliðina á hótelinu eru Kurfürstenbad-sundlaugarnar.

Hægt er að lesa nánar um hótelið hér.

Hotel Vienna House Amberg