Fara í efni
Lúxus og lífsorka á Tenerife - hressandi heilsuferð
Hótelið í ferðinni

Iberostar Grand Mencey *****

Gist er á einu fimm stjörnu hóteli höfuðborgarinnar, Iberostar Heritage Grand Mencey. Þetta er glæsilegt hótel sem er til húsa í nýlendubyggingu í kanarískum stíl sem sameinar klassíska byggingarlist og nútímalúxus. Á hótelinu er stórt og gott spa-svæði, þar sem hægt er að bóka sig í nudd og ýmsar húðmeðferðir, sundlaugargarður, líkamsrækt og nokkrir veitingastaðir.

Staðsetningin gæti vart verið betri en hótelið er staðsett í fallegu og rólegu hverfi í Santa Cruz de Tenerife, rétt við hinn fræga almenningsgarð Parque García Sanabria og í göngufjarlægð frá verslunum, veitingastöðum og menningarlegum kennileitum borgarinnar. Með einstakri blöndu af afslöppun og borgarlífi er þetta tilvalinn staður fyrir bæði rómantískar ferðir, fjölskyldufrí eða borgarupplifun á Tenerife.

Hér má nálgast frekari upplýsingar um hótelið

Hér má sjá myndir og video af hótelinu