Um fararstjórana:
Snæfríður Ingadóttir hefur starfað sem blaðamaður í meira en 25 ár. Undanfarin 13 ár hefur hún reglulega dvalið langdvölum á Tenerife með fjölskyldu sinni og skrifað ferðahandbækur um eyjuna. Snæfríður er sérstaklega hrifin af höfuðborginni og þekkir það svæði vel en hún og eiginmaður hennar Matthías eru að gera þar upp gamalt hús. Þeirra helsta afþreying á eyjunni eru göngutúrar um fjölbreytta náttúru Tenerife og njóta kanarískrar menningar.
Guðrún Gísladóttir hefur unnið sem einkaþjálfari og þolfimikennari í 32 ár, ásamt því að reka sína eigin líkamsræktarstöð, Átak-heilsurækt/Aqua Spa í 15 ár. Guðrún brennur fyrir heilsusamlegu lífi með áherslu á fjölbreytta hreyfingu, góða næringu og slökun. Hún mun bjóða upp á styrktaræfingar, bæði úti í náttúrunni og í æfingasal, ásamt Yoga sem eru dásamlegir teygju- og slökunartímar. Guðrún bjó á Tenerife í 10 mánuði veturinn 2022–2023 og varð heilluð af eyjunni fögru. Hennar helsta áhugamál er golf og spilaði hún m.a. á Real Club de Golf í höfuðborg Tenerife sem er falin perla fyrir golfarann.
Dagskrá ferðar:
Dagur 1 (laugardagur 3. okt):
Brottfarardagur.
Dagur 2 (sunnudagur 4. okt):
Ferð til San Andrés með strætó (kostar 1,25EUR sem ekki er innifalið) þar sem stríðsminjar verða skoðaðar (5 km, 215 m hækkun).
Létt ganga, gott undirlag, gengið að mestu eftir malarvegi.
Hádegisverður í San Andrés (innifalið í verði)
Þeir sem ekki vilja ganga geta sólað sig á ströndinni á meðan.
18:00 Létt hreyfing (úti eða í sal)
Dagur 3 (mánudagur 5. okt):
Góð 2 tíma styrktaræfing f.h. (ganga/styrkur/teygjur)
Snæfríður og eiginmaður hennar sem eru að gera upp hús í höfuðborginni bjóða áhugasömum (hópur 1) heim í síðdegisdrykk á verkstað í #húsiðokkarátenerife (Með fyrirvara um hvaða framkvæmdir eru í gangi í húsinu).
Hægt er að bóka golf eftir hádegi
Dagur 4 (Þriðjudagur 6. okt):
Gönguferð á nyrsta odda Tenerife. 8 km, 600 m hækkun/lækkun. Tæplega 5 klst. göngutími. Gengið er um mjóa náttúrustíga, örlítið klöngur á parti. Gengið er að elsta vita Kanaríeyja og niður í afar sjarmerandi þorp sem aðeins er hægt að komast fótgangandi í eða sjóleiðina.
Teygjur og slökun eftir gönguna (úti eða í sal)
Sameiginlegur kvöldmatur á kanarískum veitingastað um kvöldið.
Hægt er að bóka golf fyrir hádegi
Dagur 5 (miðvikudagur 7. okt):
Frídagur
Dagur 6 (fimmtudagur 8. okt):
Góð 2 klst styrktaræfinging. f.h (ganga/styrkur/teygjur),
Snæfríður og eiginmaður hennar sem eru að gera upp hús í höfuðborginni bjóða áhugasömum (hópur 2) heim í síðdegisdrykk á verkstað í #húsiðokkarátenerife (Með fyrirvara um hvaða framkvæmdir eru í gangi í húsinu).
Hægt er að bóka golf eftir hádegi
Dagur 7 (Föstudagur 9. okt ):
Gönguferð yfir Anaga-fjöllinn. (11 km með 554 m hækkun/lækkun. Göngutími 5 klst.). Gengið er í gegnum einn af fáum villtu pálmaskógum eyjunnar upp í Anaga-fjöllinn. Fallegt og fjölbreytt landslag, góð áreynsla en umbun erfiðis er að enda á veitingastað í fallegum bæ niðri við sjó. Undirlag mjóir fjallastígar.
Teygjur og slökun eftir gönguna (úti eða í sal)
Hægt er að bóka golf fyrir hádegi
Dagur 8 (laugardagur 10. okt):
Góð 2 klst styrktaræfinging. f.h (ganga/styrkur/teygjur)
Golf kl. 12:00, panta teigtíma
Sameiginlegur lokakvöldverður í höfuðborginni.
Hægt er að bóka golf eftir hádegi
Dagur 9 (sunnudagur 11. okt):
Heimferðardagur
Val um skokk, styrktaræfingar eða 5 km morgungöngu með 348 m hækkun/lækkun (2 klst. göngutími). Gengið er upp á fjall með varðturni sem sendi um árabil frá sér boð um skipakomur. Góður stígur og fallegt útsýni yfir til borgarinnar.
Dagskrá getur breyst
Ef farþegar bóka golf þá geta teigtímar stangast á við aðra skipulagða dagskrá.
Ath! Öll afþreyging er valfrjáls, þ.e hægt er að fara í þá hreyfingu sem fólk kýs alla dagana.