Innifalið:
- Flug ásamt tösku og sköttum
- Ferðir til og frá hóteli
- Gisting á 5* hóteli í Santa Cruz með morgunmat.
- 2x kvöldmatur í höfuðborginni
- 1x hádegismatur
- Hreyfipakki: Styrktaræfingar, skokk/ganga, Yoga og göngur innifalið í verði.
Öll hreyfing er valfrjáls en nauðsynlegt er að skrá sig sérstaklega í golf
Gott að taka með:
jógadýnu, grófbotna strigaskó eða létta gönguskó fyrir göngurnar, göngustafi ef vill, ennisljós, lítinn bakpoka fyrir vatn og nasl fyrir göngurnar.
Pakkaverð: 329.900 kr. á mann í tvíbýli
Golf - upplýsingar:
Hægt að að bóka sig í golf í ferðinni. Teigtímar eru ýmist fyrir eða eftir hádegi, sjá nánar í ferðalýsingunni.
Real Club de Golf de Tenerife er einn elsti golfklúbbur Spánar, stofnaður árið 1932. Völlurinn er 18 holu völlur, par 71. Hann liggur í fallegu landslagi með upprunalegum trjágróðri sem býr til afslappað og kyrrlátt umhverfi fyrir kylfinga á öllum getustigum. Um 20 mínútna akstur er á golfvöllinn frá miðborginni.
Aukakostnaður við golf: 18.000 kr á mann per hring (18 holur)
Valkvætt er að taka golfsett með sér. Það kostar 16.800 kr.
Golfarar þurfa koma sér sjálfir til og frá golfvelli.