Fara í efni
La Gomera 2025-26
Algengar spurningar

Hvernig á ég að bóka í ferðina

Til að bóka í ferðina geta viðskiptavinir farið inn í bókunarvél okkar.
Bókunarvélin okkar er einföld og takmörkuð og vonumst við til þess að fólk sýni því skilning.

Ef viðskiptavinir þurfa á aðstoð að halda eða eru með séróskir varðandi sína bókun hægt að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 4600620, senda tölvupóst á sport@verditravel.is eða arni@golfsaga.is, eða koma á söluskrifstofu okkar.
Þjónustufulltrúar okkar hjálpa ykkur með glöðu geði.

Opið er á milli 09:00-16:00 alla virka daga.

Staðfestingargjald og fullgreiðsla

Staðfestingargjald í ferðina er 50.000 kr. per farþega.
Staðfestingargjald er óendurkræft.

Ferð skal vera fullgreidd eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför.

Rástímar

GolfSaga hefur tryggt sínum farþegum bestu morgunrástíma sem völ er á. Fararstjóri kemur til með að úthluta rástímum og raða farþegum í ráshópa á meðan á dvöl stendur. Ekki hika við að senda okkur fyrirspurnir varðandi séróskir um rástíma eða spilafélaga og við gerum okkar allrar besta að uppfylla óskir ykkar

Leigusett

Í þessari ferð er hægt að leigja golfsett á staðnum. 
Leigusett í 7 daga: 15.000 kr.
Leigusett í 14 daga: 30.000 kr. 

Golfbílar

Hægt er að bóka golfbíl í þessari ferð. Þeir eru hinsvegar greiddir og staðfestir á staðnum. Gera má ráð fyrir að golfbíll kosti 36 EUR fyrir 18 holur.

Vinsamlegast látið starfsfólk okkar vita ef farþegar hafa áhuga á golfbíl.

Akstur til og frá flugvelli

Innifalið í pakkanum er skipulagður akstur til og frá flugvelli erlendis. 
Starfsmenn VERDI GolfSaga munu vera á svæðinu og aðstoða farþega eftir fremsta megni.

Fararstjórn

Starfsfólk GolfSaga bíður uppá traust og faglega fararstjórn er í okkar ferðum.
Fararstjórar okkar eru með áratuga reynslu af golf ferðum og bjóða uppá persónulega þjónustu á svæðinu.

Fæði á hótelinu

Í þessari ferð er hálf fæði innifalið á hótelinu. Með hálfu fæði er átt við morgunverð og kvöldverð.

Sætisfrátekning og betri sæti

Þessi pakkaferð er byggð upp með áætlunarflugi (hópabókun). Með því fylgja því ákveðnar takmarkanir er snúa að sætisfrátekningum (almenn sæti og exit sæti).
Einungis er hægt er að bóka sæti í áætlunarflugi u.þ.b. 6 vikum fyrir brottför með því að senda tölvupóst á sport@verditravel.is

Þegar um hópabókun er að ræða gilda því ekki sömu reglur um sætabókanir eins og þegar einstaklingar kaup sér sjálfir flug á netinu eða í leiguflugum okkar.

Við vonum að viðskiptavinir okkar sýni þessu skilning. Nánari upplýsignar er hægt að nálgast hjá sölufulltrúum okkar.

Þeir sem hafa áhuga á sagaclass sætum skulu hafa samband við sölufulltrúa.

Afbókun, nafnabreytingar og annað

Afpöntun ferðar og endurgreiðsla fer eftir Ferðaskilmálum.

Ekkert er hægt að kaupa forfallatryggingu í ferðina.