Fara í efni
La Gomera 2024-25
Hótel - La Gomera
Jardin Tecina er fallegt hótel á La Gomera Kanaríeyjunni en eins og nafnið bendir til (jardin þýðir garður) er hótelið umvafið fallegum garði og þar er að finna yfir 50 tegundir af litríkum garðplöntum, frá öllum heimshornum og skapar þessi gróðursæld einstaklega fallegt umhverfi.
 
Hér er um að ræða gistingu í tveggja manna herbergjum (smáhýsi) sem eru öll búin loftkælingu, mini-bar, sjónvarpi og baðherbergi með hárþurrku.
Á hótelinu er einnig hægt að komast í alls konar snyrti og heilsumeðferðir en þar er heilsulindin Club Burganvilla starfrækt, fáið frekari upplýsingar um kostnað og þjónustu á hótelinu.
 
Á hótelinu eru 5 veitingastaðir, allt frá hlaðborðsveitingastöðum til "gourmet" staða við sjávarsíðuna og hægt að velja um ferskt sjávarfang eða hina dæmigerðu matseld Kanaríeyjanna.  
 

Fleiri myndir af hótelinu hér

Nánar um hótelið hér