Fara í efni
Lopesan Costa Meloneras
Upplýsingar um hótelið

Costa Meloneras Resort & Spa

Costa Meloneras Resort & Spa er frábært 5* lúxushótel á Meloneras ströndinni á suðvesturhluta Kanarí. Hótelið og umhverfi þess er fallegt, þar eru garðar og sundlaugar ásamt góðri þjónustu þar sem hægt er að njóta sólar, hvíldar og skemmtunar.

Hótelið var endurnýjað árið 2021 og eru herbergin því nýtískuleg, björt og þægileg á allan hátt. Innan hótelsins má finna matvöruverslun, fataverslun, SPA ásamt veitingastöðum og börum.

Í hótelgörðunum eru 6 mismunandi sundlaugar og þar eru veitingastaðir sem bjóða upp á mat og drykki við allra hæfi. Auðvelt er að finna fallega staði fyrir utan hótelið þar sem hægt er að njóta, iðandi mannlífs, kyrrðar eða tónlistar.

Aðeins er nokkurra mínútna gangur að Maspalomas vitanum og fjölda verslana og veitingastaða. Nokkrir golfvellir, t.d. Maspalomas og Meloneras golfvellirnir, eru í nokkurra mínútna akstursfjarlægð.

Um 25 mínútna akstur er á Gran Canaria flugvöllinn (LPA).

Nánar um hótelið hér