Í þessari draumaferð fá kylfingar tækifæri til að spila á þremur af glæsilegustu golfvöllum Gran Canaria. Hver völlur hefur sinn einstaka karakter og býður upp á frábæra golfupplifun í fallegu umhverfi og við kjöraðstæður.
Meloneras golf
Fallegur og skemmtilegur 18 holu, par 71 völlur, hannaður af bandaríska arkitektinum Ron Kirby og opnaði árið 2006. Á vellinum eru tvær ólíkar en skemmtilegar lykkjur þar sem fyrri hlutinn er í dal og seinni hlutinn meðfram ströndinni. Völlurinn er haganlega hannaður að landslaginu þar sem hægt er að njóta bæði fjalla-og sjávarsýnar. Það eru fjórir teigar á hverri holu fyrir kylfinga á öllum getustigum. Snyrtimennska í vallarumhirðu er algerlega til fyrirmyndar. Völlurinn hefur hýst spænska PGA meistaramótið. Völlurinn er í uþb. 7 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu og býður upp á skemmtilegt æfingasvæði með sláttusvæði með boltaleigu og vipp- og púttsvæði þar sem hægt er að leika sér með sína eigin bolta. Ágæt golfverslun og veitingastaður er á staðnum.
Maspalomas golf
Völlurinn er staðsettur við suðurstönd Gran Canaria. Hann er við sandöldurnar sem einkenna suðurströnd eyjarinnar og hafa mótað hönnun þessa fallega golfvallar. Völlurinn er 18 holu par 73 golfvöllur hannaður af Mackenzie Ross. Völlurinn er flatur og frekar langur og brautirnar eru breiðar. Nálægðin við sjóinn veitir oft þægilegan andvara á meðan spilað er. Á vellinum er æfingasvæði með boltaleigu þar sem hægt er að æfa öll högg og á vipp- og púttflötinni má æfa sig með eigin boltum. Á vellinum er skemmtilegt klúbbhús og fín golfverslun. Þar er einnig veitingastaður þar sem gaman er að setjast niður, njóta veitinga og fylgjast með kylfingum æfa sig og leika golf. Völlurinn er í uþb. 5 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu.
Anfi golf
Anfi golfvöllurinn þykir einn af áhugaverðustu golfvöllum í Evrópu. Völlurinn var opnaður árið 2006 og nær yfir meira en 650.000 fermetra svæði. Þessi völlur sem er í svokölluðum Arizona stíl var hannaður af golfvallarhönnuðunum Von Hagge, Smelek og Baril sem eru þekktir fyrir krefjandi og nýstárlega hönnun golfvalla. Fjölbreytnin á hverri holu gerir þennan völl einstaklega skemmtilegan og áskorun fyrir kylfinga á öllum getustigum. Hönnun vallarins er einstakt mannvirki sem er upplifun að sjá. Völlurinn er í þægilegum lengdum fyrir kylfinga af öllum getustigum. Á svæðinu er líka fallegur par 3 golfvöllur og gott æfingasvæði með boltaleigu. Þar er ágæt golfverslun og veitingastaður. Ef kylfingar vilja nesta sig upp fyrir hring er SPAR matvöruverslun á svæðinu. Völlurinn hefur hýst spænska PGA meistaramótið. Anfi golfvöllurinn er í uþb. 20 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu.



