Fara í efni
Gönguferð til Mallorca
Ferðalýsing

Yndisgönguferð á Mallorca

23. - 30. september 2026

Rithöfundurinn Gertrude Stein, sem dvaldi sumarlangt í bænum Deià á norðurströnd Mallorca, sagði að þessi staður væri paradís sem sleppti ekki takinu á manni fyrr en yfir lyki.

Fyrsta heimsókn mín til Mallorca árið 1991 markaði upphaf langrar ástarsögu við eyjuna. Það sem hófst sem forvitni varð fljótt að ástríðu – fyrir fjöllunum, gönguleiðunum, litlu þorpunum og þeirri einstöku stemningu sem einkennir norðvesturhluta eyjarinnar. Úr varð gönguferð „Göngu-Hrólfs“ um Mallorca, sem síðar varð upphafið að fjölmörgum utanlandsferðum.

Nú snúum við aftur – með nýja og léttari ferð sem hentar vel þeim sem vilja njóta náttúru, hreyfingar og góðrar stemningar án mikillar áreynslu.


Um ferðina

Dvalið verður í fallega hafnar- og strandbænum Port de Sóller, einum af perlum norðurstrandar Mallorca. Þar liggja hótelin í kringum hringlaga vík og stundum er sagt að þetta sé eina „sundlaugin“ í heiminum með heilt þorp á bakkanum.

Frá bænum förum við í fjölbreyttar og léttar gönguferðir (7–10 km) um appelsínulundi, ólífugróðir og fallega fjallastíga. Við heimsækjum heillandi þorp eins og Sóller, Fornalutx og Biniaraix, siglum að stórbrotna gilinu Torrent de Pareis og njótum þar lautarferðar við sjóinn.

Við skoðum listamannabæinn Deià, göngum niður í fallega vík og njótum stórkostlegs útsýnis yfir Port de Sóller frá vitanum ofan við bæinn. Síðasti heili dagurinn er frjáls – tilvalið að slaka á, njóta strandarinnar eða fara í stutt ferð til Palma.


Ferðaskipulag

Dagur 1 – Flug til Mallorca

Flogið til Palma með millilendingu í Kaupmannahöfn og lent síðla kvölds. Þaðan er ekið með rútu til Port de Sóller á Hotel Marina Wellness & Spa (30–40 mín).


Dagur 2 – Sveitavegur til Port de Sóller

Ganga: 7–10 km | Hækkun/lækkun: ~150 m

Við tökum sporvagn eða leigubíl að upphafsstað og göngum eftir fallegum sveitavegi til baka til Sóller. Leiðin liggur um ólífu-, möndlu- og appelsínulundi og býður upp á fallegt útsýni yfir Sóllervíkina.
Eftir gönguna skoðum við gamla bæinn og fáum pizzu á veitingastaðnum Randemar.
Kvöldverður á eigin vegum.


Dagur 3 – Sa Calobra og Torrent de Pareis

Siglt er meðfram stórbrotinni norðurströnd eyjarinnar til Sa Calobra. Þaðan göngum við stuttan spöl inn í hið tilkomumikla gil Torrent de Pareis áður en við njótum lautarferðar á ströndinni.
Tími gefst til að synda og slaka á áður en haldið er til baka með bát.
Kvöldverður á eigin vegum.


Dagur 4 – Fornalutx og Biniaraix

Ganga: ~10 km | Hækkun: ~150 m

Við förum með sögulegum sporvagni til Sóller og göngum þaðan í gegnum appelsínuakra til hins fallega bæjar Fornalutx, sem hefur verið valinn einn fallegasti bær Spánar.
Þaðan höldum við áfram til fjallabæjarins Biniaraix og göngum hluta af gömlu pílagrímaleiðinni til Lluc.
Kvöldverður á eigin vegum.


Dagur 5 – Deià og Cala Deià

Ganga: 5–6 km | Hækkun: ~150 m

Ekið til listamannabæjarins Deià. Gengið er niður í fallega víkina Cala Deià þar sem tími gefst til að borða, synda og njóta umhverfisins.
Eftir það göngum við aftur upp til Deià og skoðum bæinn.
Kvöldverður á eigin vegum.


Dagur 6 – Ólífulundir og vitinn

Ganga: ~7 km | Hækkun: ~250 m

Falleg ganga upp að vitanum ofan við Port de Sóller með stórkostlegu útsýni yfir víkina.
Við göngum um ólífulundi og njótum lautarmáltíðar á leiðinni áður en við höldum aftur niður til bæjarins.
Hátíðarkvöldverður á Randemar.


Dagur 7 – Frjáls dagur

Frjáls dagur til að njóta – slaka á við ströndina, ganga um bæinn eða fara í stutta ferð til Palma (um 30 mín).
Kvöldverður á eigin vegum.


Dagur 8 – Heimferð

Heimferðardagur.


Innifalið

  • Flug

  • Rútuferðir til og frá flugvelli og til Deià

  • Bátsferð

  • 1 hádegisverður

  • 2 lautarmáltíðir (pikknik)

  • 1 hátíðarkvöldverður

  • Fararstjórn


Ekki innifalið

  • Gistináttagjald

  • Sporvagn og leigubílar til/frá Sóller

  • 4 hádegisverðir

  • 5 kvöldverðir