Fara í efni
Algengar spurningar

Hvernig á ég að bóka í ferðina

Til að bóka í ferðina geta viðskiptavinir farið inn í bókunarvél okkar.
Bókunarvélin okkar er takmörkuð og vonumst við til þess að fólk sýni því skilning, en unnið er að nýrri og endurbættri bókunarvél.

Einnig er hægt að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 4600620 (Verdi Sport), senda tölvupóst á sport@verditravel.is eða koma á söluskrifstofu okkar. Þjónustufulltrúar okkar hjálpa ykkur með glöðu geði.

Opið er á milli 08:00-16:00 alla virka daga.

Staðfestingargjald og fullgreiðsla

Staðfestingargjald í ferðina er 40.000 kr. per farþega.
Staðfestingargjald er óendurkræft.

Ferð skal vera fullgreidd eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför.

Akstur til og frá flugvelli

Innifalið í pakkanum er akstur til og frá flugvelli í Manchester. Pakkaferðir okkar eru unnar í samvinnu við Manchester United klúbbinn á Íslandi.

Fararstjóri ferðarinn og/eða sölufulltrúar okkar veita nánari upplýsingar um brottfarir á rútum.

Fararstjórn

Íslenskumælandi fararstjóri er á okkar vegum í ferðinni.
Ferðin er unnin í samstarfi við Manchester United klúbbinn á Íslandi.

Nánari upplýsingar hjá sölufulltrúum okkar.

Sætisfrátekning og betri sæti

Leitið upplýsinga hjá starfsfólki okkar.

Covid málefni

Við hvetjum fólk til að kynna sér reglunar um ferðalög til og frá Íslandi. Hér má nálgast upplýsingar á Covid.is.

Við hvetjum farþega til þess að kynna sér vel gildandi sóttvarnarreglur – bæði fyrir brottför og komu.

Afbókun, nafnabreytingar og annað

Afpöntun ferðar og endurgreiðsla fer eftir Ferðaskilmálum.

Ekkert er hægt að kaupa forfallatryggingu í ferðina.