Fara í efni
Manchester United pakkaferðir
Algengar spurningar

Hvernig á ég að bóka í ferðina

Til að bóka í ferðina geta viðskiptavinir farið inn í bókunarvélina og bókað ferðina.
Bókunarvél okkar er einföld en nauðsynlegt er að setja inn umbeðnar upplýsingar um farþega.
Við gerð bókunar þarf annaðhvort að greiða staðfestingagjald eða fullgreiða bókunina.

Einnig er hægt að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 4600620 (VERDI Sport), senda tölvupóst á sport@verditravel.is eða koma á söluskrifstofu okkar. Þjónustufulltrúar okkar hjálpa ykkur með glöðu geði.
Bókunargjald er rukkað ef bókað er í gegnum þjónustufulltrúa okkar.

Opið er á milli 09:00-16:00 alla virka daga

Staðfestingargjald og fullgreiðsla

Staðfestingargjald í ferðina er 50.000 kr. per farþega.
Staðfestingargjald er óendurkræft.

Ferð skal vera fullgreidd eigi síðar en 6-8 vikum fyrir brottför.
Viðskiptavinir fá senda greiðsluhlekki í tölvupósti þar sem þeir geta greitt ferðina sína. Einnig er hægt að greiða ferðina hjá sölufulltrúum okkar.

Akstur til og frá flugvelli

Í flestum af okkar pakkaferðum er innifalinn akstur til og frá flugvelli í Manchester. Pakkaferðir okkar eru unnar í samvinnu við Manchester United klúbbinn á Íslandi.

Þær ferðir sem ekki innihalda akstur verða sérstaklega merktar.
Fararstjóri ferðarinn og/eða sölufulltrúar okkar veita nánari upplýsingar um brottfarir á rútum.

Fararstjórn

Í flestum okkar ferðum er Íslenskumælandi fararstjóri er á okkar vegum í ferðinni.
Ferðin er unnin í samstarfi við Manchester United klúbbinn á Íslandi.

Þær ferðir sem ekki innihalda fararstjórn verða sérstaklega merktar.
Nánari upplýsingar hjá sölufulltrúum okkar.

Sætisfrátekning og betri sæti

Í pakkaferðum okkar erum við ekki að bjóða upp á sætisfrátekningar né betri sæti í flugum. 

Afbókun, nafnabreytingar og annað

Afpöntun ferðar og endurgreiðsla fer eftir Ferðaskilmálum.

Ekkert er hægt að kaupa forfallatryggingu í ferðina.

Farangursheimild í flug

Farangursheimild í flugið er sem hér segir:.
Icelandair: 23kg innritaður farangur og handfarangurstaska.
Play: 20kg innritaður farangur og lítill bakpoki handfarangur

Skoðunarferð um völlinn

Viðskiptavinir okkar geta nú bókað skoðunarferð um Old Trafford um leið og þeir bóka ferðina sína. 
Nánari tímasetning á skoðunarferðum liggur fyrir c.a. 2 vikum fyrir brottför.

Verð í skoðunarferð:
5.000 kr fyrir fullorðna
3.000 kr fyrir börn (0-11 ára)

Vildarpunktar

Ekki er hægt að greiða fyrir ferðirnar með vildarpunktum Icelandair, en farþegar í vildarklúbbnum fá vildarpunkta fyrir Icelandairflugið í ferðunum.

Covid málefni

Við hvetjum fólk til að kynna sér reglunar um ferðalög til og frá Íslandi. Hér má nálgast upplýsingar á Covid.is.

Við hvetjum farþega til þess að kynna sér vel gildandi sóttvarnarreglur – bæði fyrir brottför og komu.