Fara í efni
Montecastillo - Haustið 26
Hótel - Montecastillo Golf

Glæsilegt gamalt og virðulegt hótel með frábærri verönd með útsýni yfir 18 brautina, sem er ein flottasta lokahola á golfvelli í Evrópu.
Hótelið stendur rétt utan við hinn fallega bæ Jerez de la Frontera.

Hér er umgjörðin einstaklega glæsileg og allur aðbúnaður og þjónusta fyrir hótelgesti eins og best verður á kosið. Við hótelið eru 2 sundlaugar, 2 veitingastaðir og barir, glæsileg heilsulind (spa), líkamsrækt, o.fl. Opnunartímar eru árstíðarbundnir og hægt að fá upplýsingar í móttöku hótelsins.

Á hótelinu eru 208 rúmgóð og vel búin herbergi, m.a. með loftkælingu, minibar, kaffivél, öryggishólfi, sjónvarpi, síma, og baðherbergi með hárþurrku.

Auk hins þekkta golfvallar eru við hótelið fótboltavellir, tennisvellir og almenn aðstaða til íþróttaiðkunar.

 

Fleiri myndir af hótelinu hér

Nánar um hótelið hér