Montecastillo golfvöllurinn er glæsilegur 18 holu völlur, hannaður af Jack Nicklaus. Hann er sannarlega einn af perlum GolfSögu með 5 stjörnu hóteli og frábæru æfingasvæði fyrir kylfinga.
Völlurinn er fyrsta hönnun Jack Nicklaus í Evrópu og er álitin hans besta í Evrópu.
Lokamót Evrópumótaraðarinnar (nú DP World Tour) var haldið á þessum velli í 5 ár í röð frá 1997 til 2001.
Vatnsskort- og úrhellistímabil hafa laskað golfvöllinn undanfarin misseri en aukin áhersla hefur verið lögð í að endurbæta hann eftir slík tímabil og vel gengur að koma honum í gott ástand og að hann skipi sér aftur í hóp glæsilegustu golfvalla Evrópu
Í þessari ferð er allt innifalið skv Barcelo “All inclusive” í mat og valdir drykkir á bar og veitingastað, ásamt ótakmörkuðu golfspili. Golfbíll fylgir með pakkanum fyrstu 18 holurnar, en tekið er hóflegt gjald (20 EUR á mann) fyrir leigu á golfbíl seinni 18 holurnar.