Fara í efni
Pílagrímsganga Róm
Ferðalýsing

PÍLAGRÍMAGANGA SÍÐUSTU 125km TIL RÓMAR. MONTEFIASCONE - RÓM.

12. - 23. október 2023
Fararstjóri er Steinunn Harðardóttir

Verdi og Göngu-Hrólfur bjóða upp á einstaklega skemmtilega pílagrímagöngu í haust.

Fyrir nokkrum árum hélt Magnús Jónsson sagnfræðingur vinsæl námskeið um suðurgöngur Íslendinga á miðöldum. Í framhaldi af þeim fór hann með all marga gönguhópa um nokkra hluta pílagrímaleiðarinnar til Rómar. Frá Lucca til Siena, niður Santi Bernharðsskarðið , yfir Appeninafjöllin niður í Genúaflóann og að lokum síðustu 125 kílómetrana til Rómar. Haustið 2022 gefst kostur á að ganga þessa síðustu kílómetra frá Montefiascone til Rómar. Þeir sem fara að lámarki þessa leið geta fengið viðurkenningu páfa í lokin. Að þessu sinni verður Steinunn Harðardóttir leiðsögumaður og sagnaþulur í stað Magnúsar.
Það er til íslensk leiðarlýsing fyrir pílagríma frá 1153 eftir Nikulás Bergsson ábóta á Munkaþverá og liggur leið göngumanna í fótspor hans eins og unnt er. Margir þekktir Íslendingar gengu suður, m.a. Guðríður Þorbjarnardóttir, Hrafn Sveinbjarnarson og Sturla Sighvatsson sem var leiddur berfættur milli allra kirkna í Rómaborg og hýddur frammi fyrir flestum höfuðkirkjum.

FERÐATILHÖGUN:

Flogið er til Rómar og ekið til Montefiascone sem er nokkuð sunnan við Siena þar sem fyrsti hluti pílagrímagöngu okkar endaði. Gengið er í fótspor pílagríma en einnig Rómverja þegar farin er hin forna via Appia leið eftir hellulögðum stígum. Leiðin liggur um einstaklega fallegt landslag, gamla sögufræga bæi eins og Viterbo og Sutri og framhjá fornum sprengigýgum og eldfjöllum. Að mestu er gist í tveggja manna herbergjum bæði á hótelum og í einfaldari gistiaðstöðu. Kvöldverður innifalinn alla göngudagana en hádegisverður á eigin vegum. Farangur er alltaf fluttur milli staða og bíll fylgir hópnum svo þeir sem þess óska þurfa aðeins að ganga hluta dagleiðanna geta fengið far seinni hluta dagsins.

1. Dagur Reykjavík Róm-Montefiascone 12.10 2024
Flogið til Rómar, þaðan er um tvegga tíma akstur til Montefiascone þar sem gist er fystu nóttina. Montefiascone sem stendur á hæð sunnan við Bolsenavatnið er um 100 kílómetrum norðan við Róm og innan vébanda Lasiohéraðsins í mið Ítalíu. Borgin sem stendur á mikilli hæð var ein af 12 höfuðborgum Etruska og var kastalinn þar einn af dvalarstöðum Albornos Kardinála þegar páfastóllinn var í Avignon. Hann fór síðar í niðurníðslu vegna sjúkdómsfaraldurs 1657 og mikilla jarðskjálfta 1697 en hefur að einhverju leyti verið endurbyggður. Gisting og kvöldmatur á hóteli Alta Villa http://www.altavillahotel.com/altavilla/

2. Dagur Montefiascone- Viterbo 13.10 2024 (16-20 km)
Um morguninn gefst tími til að skoða sig um í Montefiascone og jafnvel fara upp í „pílagrímaturninn“. Þaðan er gott útsýni yfir gönguleiðna til Viterbo og síðan Rómar og yfir hið undurfallega Bolsenavatn. Við fáum tilfinningu fyrir svæðinu og sögu þess allt frá tímum Etruska, Rómverja og fram á miðaldir. Leiðin liggur að hluta eftir hellulögðum vegi, Via Cassia sem var mikilvæg rómversk leið, líklega frá 2.öld fyrir Krist. Á göngunni er víða heillandi útsýni yfir Montefiascone og Viterbo. Þegar um fimm kílómetrar eru til Viterbo er farið fram hjá aflögðum heitum böðum „Terme del Bagnaccio“. Þeirra er getið þegar á miðöldum. Viterbo var páfasetur um skeið og þar er mikið af glæsilegum kirkjum og klaustrum frá þeim tíma. Gaman er að skoða fyrrum dvalarstað páfa „Palazzo dei Papi“ og rölta um gamla bæjarhlutann “del Pellegrino” Kvöldverður á hótelinu eða „tavernu“ í gamla borgarhlutanum og þar verður ef til vill boðið upp á Acquacotta, sem er hefðbundinn réttur frá l Tusciahéraðinu. Gisting og matur www.tusciahotel.com Gengið 16-20km 5-6 tíma, hækkun+150m lækkun 450m.

3. Dagur Viterbo-Vetralla 14.10.2024 (18 km)
Enn er gengið í Tuscia héraðinu um ólívulundi, akra og engi, framhjá litlum sveitabæjum og fé á beit. Þennan dag er farið yfir mörkin þar sem nákvæmlega 100 kílómetrar eru til Rómar, en það er lágmarksvegalengd til að fá TESTIMONIUM eða viðurkenningu páfa. Þegar komið er til Vetralla liggur leiðin um gamlar og þröngar götur bæjarins þar sem hægt er að bragða á sérrétti svæðisins, brauði og einstakri ólívuolíu. Gisting og kvöldverður (Antica Locanda Francigena- Vetralla locandafrancigena.it.) Gengið 18 km 6 tíma hækkum +260m; lækkun -280m.

4. Dagur Vetralla- Capranica 15.10.2024 (18 km)
Þennan dag er gengið um einstaklega falleg sveitahéröð milli tveggja borga. Þegar komið er til Capranica er gaman að skoða sig um í bænum sem er við rætur fornra eldfjalla Cimini og Sabatini og allt landslagið ber eldvirkninni merki. Um 6 kílómetrum norðan við bæinn er gígvatnið Vico og fyrir sunnan hann er Braccianovatnið sem einnig er í gömlum gíg. Bærinn stendur á hæð með útsýni yfir Sutridalinn. Fegurð staðarinns heillar marga Rómverja sem ýmsir eiga þarna sumarhús. Bærinn skiptist í 3 hluta og tveir þeirra elstu eru á móbergsklettum milli djúpra dala. Federico Fellini tók lítinn hluta myndarinnar La dolce vita fyrir neðan annað þeirra, „Castrovecchio við Porta del Ponte“. Gisting og kvöldverður ( Hotel Capranica ( http://www.hotelcapranica.it/) Gengið 18 km 5-6 tíma hækkun +400m lækkun -400m.

5. Dagur. Capranica-Sutri-Monterosi 16.10.2024 (10-12 km)
​Þennan dag fer drjúgur tími í að skoða sig um í hinum sögulega bæ Sutri og virða fyrir sér freskurnar í Santa Maria del Parto kirkjunni. Sérlega athyglisverðar eru fornar myndir af pílagrímum. Þá er einnig farið í skoðunarferð með leiðsögn um einstakan rómverskan leikvang sem er listilega grafinn inn í hæð. Að því loknu er genginn síðasti spölurinn til Monterosi þar er mjög skemmtileg bændagisting og gott að slaka á og njóta sveitasælunnar í Tuscian. Gisting og kvöldverður Agriturismo Scuderie della Contea -Monterosi- (http://www.scuderiedellacontea.it ) 10-12 km, um 6 tímar upp 250m, niður -250m.

6. Dagur. Monterosi-Campagna. 17.10.2024 (24 km)
Ganga dagsins liggur um Trejadalinn sem er við rætur Montegelatofjallsins. Þarna eru tærar lindár sem hægt er að baða sig í og fallegir fossar. Enn er gengið eftir hinni fornu Rómversku leið Via Cassia en hún liggur um bæinn Campanagnano De Roma sem er fyrst getið 1076. Þegar nær dregur má sjá húsin rísa upp í landslaginu. Fyrir kvöldmatinn er gaman að skoða sig um í Campagnano. Gisting og kvöldverður Hotel Benigni – Campagnano (RM) http://www.hotelbenigni.it Gengið 6 -7 tíma 24 km ; hækkun +150m lækkun -150m.

7. Dagur. Campagnano-Isola Farnese 18.10.2024 (19 km)
Frá Campagnano er haldið um skógivaxnar hæðir þjóðgarðsins Vejo, niður í Sorbodalinn og gegnum Formello sem er sérlega skemmtilegur miðaldabær. Að lokum er komið til Isola Farnese sem stendur í skógivaxinni hæð, efst á henni trónir Farnesekastalinn. Gisting og kvöldverður: Hotel Tempio di Apollo ( http://www.hotelromacassia.it/ ) Gengið 19 km 6 tíma hækkun 550m lækkun 650m.

8. Dagur. Isola Farnese-Rome 19.10.2024 ( ca 12.km)
Eftir morgunverð erum við tilbúin fyrir síðustu og dagleiðina og enn er haldið eftir hinni hefðbundnu pílagrímaleið. Að nokkru er gengið í borgarlandslagi en leiðin liggur um úthverfi borgarinnar. Við munum þó væntanlega taka lest hluta leiðarinnar að Monte Mario friðlandinu til að hafa meir tima á Péturstorginu i lokin. Þegar komið er á Monte Mario blasa Péturskirkjan og Péturstorgið við í fjarska og fyrr en varir verðum við komin þangað og markinu náð. Gengið ca 4 tíma. Hotel Medici http://www.hotelmedici.com

9. Dagur. Pílagrímakirkjurnar í Róm 20.10.2024

Við notum daginn til að ganga á milli kirkna í borginni að pílagríma sið og förum í fótspor Sturlu Sighvatssonar í kirkjurnar Santa Maria Maggiore, San Pietro in Vincoli, St Giovanni í Laterano, og fleiri kirkjur.

10.-11. Frjálsir dagar í Róm

12. Dagur. Flogið heim frá Róm