Fjallastígar Garfagnanadalsins í Toscana
01 - 08. júní 2026
Fararstjóri er Steinunn Harðardóttir og Matteo Zambone leiðsögumaður.
Erfiðleikastig er metið sem tvö fjöll.
Göngu Hrólfur fór í fyrstu Garfagnana ferðina fyrir um 25 ár. Þá var gist í fjallaskála í Puntadodalnum í Apuan ölpunum. Nú er gist í hótelum og gistiheimilum en farið í heimsókn í Puntatodalinn. Gist er í fjallabænum Corfino sem er í útjaðri Orecchiella-friðlandsins. Þar er gengið upp á bæjarfjallið Pania di Corfino og gamlar fjárhirðabyggðir heimsóttar. Þá er haldið til bæjarins Barga sem valinn hefur verið fallegasti miðaldabær Ítalíu. Gist er tvær nætur á herrasetrinu hótel La Pergola og farið í gönguferð um nágrennið. Einnig er farið til Borgo a Mozzano og gengið til vínræktarbúgarðsins Macea til að bragða á framleiðslunni. Þá er einn hádegisverður á mjög sérstæðum veitingastað Il Veccio Mulino í bænum Castelnuovo di Garfagnana. Síðasti gististaðurinn er í La Ceragetta resort sem er hátt í fjöllum Apuan Alpanna í eyðiþorpinu Capanne di Careggine. Þar er hvert hús eitt eða fleiri hótelherbergi. Þaðan er gengið í eyðidalinn Puntado.
Ólöf Arngrímsdóttir - Umsögn
"Þessi ferð er alveg einstök. Það er gengið í einstakri náttúru með reyndum fararstjórum sem elska héraðið og þekkja sögu svæðisins. Við gengum á góðum fjallastígum í breytilegu skóglendi og kynntumst sögu héraðsins og ýmsum perlum sem ekki eru í alfaraleið. Einnig var farið í heimsóknir til bænda í héraðinu sem buðu uppá að smakka það sem þeir rækta s.s. olivur, kjöt, grænmeti og vín.Allt viðmót og mótttökur gestgjafanna var svo sérstakt sennileg vegna þess að þau þekkja og eru vinir leiðsögumannanna "
FERÐATILHÖGUN:
Dagur 1 Keflavík- Corfino
Flogið er frá Keflavík og lent á flugvellinum í Mílanó um þrjúleitið. Síðan er ekið eins og leið liggur til þorpsins Corfino (860m), um 4 tíma ferð. . Af torgi bæjarins er frábært útsýni yfir Garfagnanadalinn en það skoðum við jafnvel síðar. Við komum okkur vel fyrir á hótel Panoramico í Corfino, fáum þar góðan kvöldverð og gistum næstu þrjár nætur:
Dagur 2. Gengið frá Corfino upp á fjallsengi til Campaniana
Þorpið Corfino er í útjaðri friðlandsins Orecchiella við rætur fjallsins Pania di Corfino (1606m). Eftir morgunverð er haldið frá hótelinu að fjallinu og eftir fornum stígum fjárhirða sem fluttu hjarðir sínar upp á fjallsengin á vorin. Þeir bjuggu í fjárhirðaþorpinu Campaiana yfir sumarið og gættu hjarðarinnar. Þar á engjunum breiðum við úr dúknum og snæðum ljúffengan lautarverð sem fararstjórinn hefur keypt og við borið í sameiningu. Eftir matinn er haldið aðra leið til baka. Gengið er meðfram árfarvegi um beiki og kastaníuskóg og framhjá hinum spennandi brunni Fonte dell ‘Amore. Gengið er í um sex klukkustundir. Hækkun 600m, lækkun 600m . Kvöldmatur á hótelinu
Dagur 3. Upp á topp á Pania de Corfino
Í dag er haldið frá La Baita að fjárhirðaseljunum í Pruno, en þeim hefur nú verið breytt í sumarhús. Þarna undir vesturhlíðum fjallsins Pania di Corfino í útjaðri Orecchiella - friðlandsins virðast fjallshlíðarnar ókleifar. En í skriðunum leynist skemmtilegur stígur upp á fjallið sem við leitum uppi og höldum alla leið upp á topp (1606m). Þaðan er einstakt útsýni yfir Garfagnanadalinn og yfir til Apuan-alpanna. Eftir ljúffengan lautarverð er haldið niður af fjallinu eftir þægilegum stíg sem er umvafinn björtum beykitrjáum. Gengið í um sex klukkustundir. Hækkun og lækkun um 750. Kvöldmatur á hótelinu.
Dagur 4 Castelnuovo og Barga.
Það er komið að því að yfirgefa hótelið og smábæinn Corfino. Við byrjum morguninn á að fara í stutta skoðunarferð um bæinn og fæðast um sögu hans og bæjarlífið. Síðan er haldið til “Castelnuovo” sem er aðal verslunar- og viðskiptamiðstöð dalsins. Fimmtudagur er markaðsdagur svo við fáum tækifæri til að heimækja markaðinn,skoða bæinn og jafnvel versla áður er haldið á hinn sérstæða veitingastað “Il Vecchio Mulino” (Gamla myllan) þar sem bragðað er á framleiðslu héraðsins. Eftir ljúffenga máltíð liggur leiðin til hins fallega miðaldabæjar Barga (45 mín akstur). Fyrir nokkru veitti„The Italian Touring Club“ bænum appelsínugulan fána sem tákn um að hann væri besti miðaldabær á Ítalíu“ Þegar við höfum skráð okkur á hótel er farið í stutta gönguferð um Barga sem endar á útsýnisstoppi við San Cristoforo kirkjunna, merkilegustu miðaldakirkju svæðisins. Í Barga eru mörg áhugaverð veitingahúsin svo að þessu sinni er kvöldmaturinn á eigin vegum. Gist á gömlum herragarði Villa Gherardi http://www.villagherardi.it/
Dagur 5. Dalurinn umhverfis Barga,vínsmökkun og saffran fræðsla.
Í dag göngum við frá hótelin og höldum eftir þægilegum stígum um sveitirnar umhverfis Barga og fræðumst um þetta fallega og sögufræga hérað. Á leiðinni er stoppað á sveitabæjum þar sem við fáum upplýsingar um saffran ræktun, njótum léttra veitinga og brögðum á vínframleiðslu staðarins. Þegar líður á gönguna sést til Apuan Alpanna sem ramma Garfagnanadalurinn af í suðri en í norðri er svo Appenínafjallgaðurinni. Síðar í ferðinni liggur leiðin yfir í Apuan Alpana sem eru spennandi kalksteins- og marmarafjöll með mörgum frægum marmaranámum. Gengið um 14 km. ca.4 tíma, hækkun og lækkun um 400 m. Kvöldverður og gisting Villa Gherardi http://www.villagherardi.it/
Dagur 6 Bíódínamiskaræktun.
Haldið með rútu til Borgo a Mozzano sem er í neðri hluta Garfagnanadalsins. Þar skoðum við hina einstöku djöflabrú, Il Ponte del Diavolo, sem á að hafa verið reist með hjálp djöfulsins. Haldið er gegnum bæinn framhjá fallegri millu og kirkju að vín- og ólífubúgarðinum Macea. Þar eru miklir hugsjónamenn sem stunda “bíódnamíska” ræktun af eldmóð. Vínið er unnið úr sérstökum þrúgunum og er einstaklega gott. Við fáum að bragða á því með léttri máltíð. Eftir notalega heimsókn er hópnum ekið upp í eyðiþorpið Capanne di Careggine sem er í hjarta Apuan Alpanna. Þar hefur nokkrum húsanna verið breytt í skemmtilegt gistiheimili. Góð aðstaða er í húsunum og íbúarnir snæða þar morgunmat en kvöldmatur verður á veitingastað skammt frá. Þeir sem vilja geta tekið sundsprett fyrir matinn. Þægileg ganga 2-3 tímar hækkun ca.200m. Gist: La Ceragetta resort , kvöldmatur á veitingastað í nágrenninu. https://www.casevacanzalaceragetta.it/
Dagur 7. Puntato hringur
Við höldum gangandi niður úr þorpinu að vatninu Isola Santa, það er í raun uppistöðulón því fyrir um 60 árum var þorpinu Isola Santa sökt vegna stíflugerðar. Eftir að hafa skoðað okkur um og fræðst um sögu staðarins er haldið upp í móti og stefnt á annað eyðiþorp Col di Favilla. Það er sérstætt að sjá hvernig hrunin og yfirgefin húsin standa á mjóum fjallshrygg. Brátt erum við komin inn í úfið landslag kalksteinsfjallanna þar sem finna má fjölmargar marmaranámur, kastaníu- og beikiskóga, gömul engi og merki um fornan seljabúskap. Lokatakmark okkar er dalurinn Puntato sem er í 1000 metra hæð. Þar dvöldu áður um 400 manns á sumrin með búfé sitt. Nú eru sum húsanna nýtt sem sumarhús og fjallaskálar. Við göngu framhjá einum þeirra Rifugio La Quiete. Á hæð, við kirkju staðarins breiðum við úr dúknum og njótum sérstæðs andrúmslofts staðarins. Síðan er haldið til baka að Isola Santa og upp til Ceragetta, framhjá gömlum marmaranámum og millu. Göngutími ca 6 klst. Hækkun /lækkun 800 m lengd 10 km. Gist La Cerragetta resort kvöldmatur á veitingastað í nágrenninu
Dagur 8. Heimferðardagur
Við pökkum farangrinum snemma morgana og ökum til Milanó (4-5 tímar) en flogið verður heim um 16.00 og mikilvægt að hafa tímann fyrir sér.