Fara í efni
Valencia frá Akureyri
Hótel í Valencia
EXE REY DON JAIME ****

Exe Rey Don Jaime er glæsilegt og þægilegt 4 stjörnu hótel á góðum stað í Valencia, þar sem klassískur stíll og nútímaleg þægindi fara vel saman.

Hótelið er rúmgott og vel útbúið, með þægilegum herbergjum, veitingastað og notalegum sameiginlegum svæðum þar sem gott er að koma saman eftir góðan dag í borginni.

Á hótelinu er einnig líkamsræktaraðstaða og útisundlaug á þakinu. Staðsetningin er frábær, skammt frá Turia-garðinum og hinu glæsilega lista- og vísindahverfi, City of Arts and Sciences. Þaðan er jafnframt þægilegt að komast bæði í miðborg Valencia og að ströndinni.

Nánari upplýsingar hér

NOVOTEL VALENCIA LAVANT ****

Novotel Valencia Lavant er glæsilegt og nútímalegt hótel þar sem þægindi og flott hönnun mætast á góðum stað í Valencia.

Fyrir hópa er Novotel frábær kostur. Hótelið er bjart og vel útbúið, með nútímalegum herbergjum, góðum veitingastað og skemmtilegum barsvæðum. Á þakinu er flottur Sky Bar með frábæru útsýni yfir Valencia – fullkominn staður til að setjast niður og njóta stemningarinnar.

Á hótelinu er einnig vel útbúin líkamsræktaraðstaða og veitingastaðurinn Papúa Valencia, þar sem áhersla er lögð á miðjarðarhafsmat með spennandi áhrifum úr öðrum heimshlutum.

Nánar um hótelið hér