Fara í efni
Valencia frá Akureyri
Ferðalýsing - helstu upplýsingar

VALENCIA:

Valencia er lífleg og falleg borg við Miðjarðarhafið og einn skemmtilegasti áfangastaður Spánar. Borgin sameinar á einstakan hátt spænska menningu, fallegan arkitektúr, strandlíf og nútímalegt borgarlíf.

Miðborg Valencia er einstaklega skemmtileg en þar má finna fjölbreytt úrval verslana, góðra veitingastaða, kaffihúsa og skemmtilegra bara. Gamli bærinn er heillandi með þröngum götum, fallegum torgum og sögulegum byggingum og þar er auðvelt að njóta borgarinnar fótgangandi.

Eitt helsta einkenni Valencia er Turia-garðurinn sem liggur í gegnum stóran hluta borgarinnar. Þar er frábært að ganga eða hjóla og garðurinn leiðir meðal annars að hinu glæsilega lista- og vísindahverfi, City of Arts and Sciences, sem er orðið eitt helsta kennileiti Valencia.

Ströndin er heldur aldrei langt undan. Við Malvarrosa-ströndina og smábátahöfnina er skemmtileg stemning og þar má finna fjölmarga veitingastaði og bari. Valencia er jafnframt heimaborg paellunnar og því tilvalinn staður til að njóta spænskrar matarmenningar eins og hún gerist best.

Valencia hentar einstaklega vel fyrir hópa. Auðvelt er að komast á milli staða, úrval veitingastaða og afþreyingar er mikið og borgin býður upp á góða blöndu af menningu, mat, verslun, sól og skemmtilegu mannlífi.


FLUGUPPLÝSINGAR:
Flogið er í leiguflugi frá Akureyrarflugvelli.
Flugrekandi er Atlantic Airways, Færeyska flugfélagið sem unnið hefur með okkur í fjölmörgum verkefnum.

Flogið er til Valencia Airport / Aeropuerto de Valencia (VLC) flugvallarins og er áætlaður flugtími er um 4klst & 20mín frá Akureyri.

Hverjum farþega er heimilt að taka með sér eina innritaða tösku (hámark 20 kg) og eina litla handfarangurstösku/bakpoka (5 kg). 
Vinsamlegast athugið að ekki er gert ráð fyrir hefðbundinni flugfreyjutösku sem handfarangri.

Innritun fyrir flug hefst um 2 klst fyrir brottför.
Ekki er hægt að innrita sig rafrænt í leiguflug. 

Farþegar fá sent ferðayfirlit/voucher frá VERDI ferðaskrifstofu - engir flugmiðar eru gefnir út fyrir leiguflug en er nóg að framvísa gildu vegabréfi við innritun.

Ekki er hægt að kaupa eða taka frá sæti í fluginu. Fólki með séróskir er bent á að hafa samband með því að senda tölvupóst á verdi@verditravel.is 

Áætlaðir flugtímar:
30.okt   AEY-VLC   13:00-18:30
2.nóv   VLC-AEY   09:35-13:05

VÖRUR OG VEITINGAR Í FLUGI:
Hægt er að kaupa vörur og léttar veitingar um borð (drykkir, smáréttir/samlokur, snarl) . Greiða þarf fyrir vörur og veitingar með greiðslukortum og muna þarf pin númer á kortum. Ekki er hægt að treysta á snertilausar greiðslur í háloftunum.

VIÐ KOMUNA TIL VALENCIA:
Við komuna til Valencia munu rútur bíða fyrir utan flugstöðina ásamt starfsfólki VERDI Ferðaskrifstofu. Rúturnar verða merktar og mun starfsfólk aðstoða farþega á staðnum. 
Akstur frá flugvelli og að hóteli tekur um 15-25 mínútur.

Við komuna á hótelið tekur við innritun sem reikna má með að taki smá tíma. Gott pláss er í anddyri hótelsins og á bar-svæðinu og hvetjum við fólk til að taka því rólega og sína biðlund.
VERDI Ferðaskrifstofa verður búin að undirbúa innritun eftir bestu getu í samstarfi við starfsmenn hótelsins.
Gera má ráð fyrir að sýna þurfi vegabréf hjá gestum við innritun.

TRYGGINGAR OG FERÐAGÖGN:
Við bendum farþegum á að skoða sín tryggingamál áður en lagt er af stað. Flest tryggingafélög á Íslandi eru með valfrjálsar ferðatryggingar og því ekki víst að ferðatryggingar séu innifaldar í heimilistryggingum.
Ágætar ferðatryggingar eru einnig á kreditkortum en mismunandi er eftir gerðum korta hversu háar tryggingar eru innifaldar á þeim. Ekki þarf að greiða fyrir ferðina með kreditkorti til að virkja þær tryggingar eins og var hér áður fyrr.
Evrópska sjúkratryggingakortið er einnig ágætt að hafa en sækja má um það á www.sjukra.is. Það kort tryggir fólki aðgang að ríkisrekinni heilbrigðisþjónustu ef fólk veikist eða slasast.

Einnig bendum við farþegum á að athuga gildistíma vegabréfs og gera ráðstafanir í tíma.