Zumba partý í Danmörku
Zumba Partý í Danmörku
28. Maí - 1. Júní 2026
Upplifðu einstaka Zumba-ferð til Danmerkur þar sem hreyfing, gleði og samfélag mætast!
Scandinavian Zumba Party er stærsti eins dags Zumba-viðburður Evrópu og býður upp á 7 klukkustundir af orku, dansi og ógleymanlegri stemningu. Þú færð að taka þátt í fjölbreyttum tímum með heimsþekktum kennurum í stórkostlegri aðstöðu rétt fyrir utan Kaupmannahöfn.
Ferðin er opin öllum, óháð getustigi, og sameinar dans, tónlist og frábæran félagsskap í einstaka upplifun sem skilur eftir sig bros, minningar og endurnýjaða orku.
Hvað er innifalið í pakkanum?
- Flug með Icelandair (KEF-CPH-KEF)
- 23kg taska og 10kg handfarangur
- Rúta til og frá flugvelli
- Gisting með morgunverði
- Aðgangur að Scandinavian Zumba Partý á laugardeginum
- Partý rúta til og frá hótelum
- Íslensk fararstjórn
Dagsetningar og verð
- 28. maí - 1. júní 2026
- Verð frá 209.900 kr á mann í tvíbýli
- Aukagjald fyrir einbýli: 85.000 kr.
Hér má nálgast helstu upplýsingar um hótelið sem í boði er í þessari ferð.
Hér má nálgast frekari upplýsingar um hvað er innifalið í ferðinni sem og upplýsingar um fararstjóra ferðarinnar
Ferðaskilmálar
Ferðaskilmálar VERDI Travel