Lopesan Costa Meloneras
Golfævintýri á Kanarí
Dekraðu við þig með draumaferð golfarans til Gran Canaria og gistu á hinu glæsilega Lopesan Costa Meloneras. Hér sameinast fyrsta flokks gisting, frábært golf og notalegt frí við sólríkar aðstæður.
Í landpakka okkar er innifalin gisting með morgunverði, akstur á golfvelli frá hóteli, traust fararstjórn og fimm golfhringir á þremur af vinsælustu völlum eyjarinnar – 2x hringir á Anfi Golf, 2x á Meloneras Golf og 1x á Maspalomas Golf. Þetta eru fjölbreyttir og skemmtilegir vellir sem eiga fastan sess hjá kylfingum víðs vegar að úr heiminum.
Fullkomin ferð fyrir þá sem vilja njóta frábærs golfs, glæsilegs hótels og afslappandi frís í einstöku umhverfi.
Ef viðskiptavinir vilja fá tilboð í flug til Kanarí - hafið þá samband við sport@verditravel.is

Hvað er innifalið í pakkanum?
- Gisting með morgunverð á stórglæsilegu hóteli
- 5x golfhringir (Anfi Golf, Meloneras Golf & Maspalomas Golf)
- Akstur til og frá hóteli á golfvöll
- Traust fararstjórn
- Golfbíll kostar 25 evrur á mann fyrir 18 holur
- Golfkerra kostar 7 evrur fyrir 18 holur
Dagsetningar og verð
| Okt 26 | Verð frá 239.900 kr. á mann í tvíbýli | 7 nátta pakkar |
| Nóv 26 - Apríl 27 | Verð frá 269.900kr. á mann í tvíbýli | 7 nátta pakkar |
| Páskaferð | Verð frá 279.900 kr. á mann í tvíbýli | 18. - 25. mars 2027 |
Hér má nálgast nánari upplýsingar um þessa draumaferð golfarans til Kanarí.
Hér má nálgast helstu upplýsingar um hótelið sem er í þessari ferð.
Hér má finna svör við algengnum spurningum sem farþegar okkar spyrja.
Ferðaskilmálar
Ferðaskilmálar VERDI Travel