Fara í efni

Lúxus og lífsorka á Tenerife - hressandi heilsuferð

Nýtt

Lúxus og lífsorka á Tenerife - hressandi heilsuferð

3. - 11. október 2026

Lúxusferð til höfuðborgar Tenerife sem sameinar borgarlíf, hreyfingu, golf og útiveru.
Frábær ferð fyrir alla þá sem vilja kynnast hinni hliðinni á Tenerife, hreyfa sig í fríinu en jafnframt gera vel við sig. Hentar bæði fyrir pör sem einstaklinga. Gist er á fimm stjörnu hóteli á besta stað í borginni þar sem iðandi borgarlífið er í göngufæri.
Daglega er boðið upp á hreyfingu af ýmsu tagi, ýmist í formi gönguferða um Anagaskagann, styrktaræfinga, skokks og/eða Yin Yoga.

Áhugasamir geta skellt sér í golf á einn elsta golfvöll Spánar eða á Teresitas-ströndina, sem er af mörgum talin vera fallegasta strönd eyjunnar.

Fararstjórar eru þær Guðrún Gísladóttir og Snæfríður Ingadóttir.

Verð frá: 329.900 kr. á mann í tvíbýli

Hvað er innifalið í pakkanum?


      • Flug ásamt tösku og sköttum
      • Gisting á 5 stjörnu hóteli með morgunverði
      • Akstur til og frá flugvelli
      • Heilsupakki - Gönguferðir, Yoga, Teygjur
      • 2x kvöldverðir og 1x hádegisverður
      • Traust fararstjórn

      • Möguleiki að fara í golf - bókað sérstaklega

Upplýsingar um flug:


  • Flug með Icelandair
  • 3. okt     KEF-TFS     10:00 - 16:25
  • 11. okt    TFS-KEF    17:25 - 21:55
  • Innritaður farangur (23kg) og handfarangur

 

Ferðalýsing og fararstjórar

Hér má nálgast nánari ferðalýsingu um ferðina ásamt upplýsingar um fararstjóra

Lesa meira
Upplýsingar um golf og hvað er innifalið

Hér má nálgast upplýsingar um golfið og hvað er innifalið í ferðinni.

Lesa meira
Hótelið í ferðinni

Hér má nálgast upplýsingar um hið glæsilega Iberostar Heritage Grand Mencey hótelið, sem er í boði í þessari ferð

Lesa meira

Ferðaskilmálar

Ferðaskilmálar VERDI Travel

Ferðaskilmálar okkar